Sennilega eru ekki svo margir Íslendingar sem sjá haust- eða vetrarferð til Osló í Noregi í hillingum. Borgin jú bæði köld og dýr og nóg er af þess lags á Íslandinu. En margir eiga þar ættingja og vini og gera sér því ferð þó árstíminn sé lítt spennandi.

Upp og niður hvaða flugfélag býður lægsta verð til Oslóar næstu mánuði
Þrátt fyrir allt er Osló ein örfárra borga þangað sem flogið er í beinu flugi héðan og hægt að velja um heil þrjú mismunandi flugfélög. Fyrir utan Icelandair fljúga þessa leið bæði lággjaldaflugfélagið Norwegian sem og Scandinavian Airlines betur þekkt sem SAS.
Það er því tilvalið að skoða hvað þessara þriggja flugfélaga er að bjóða lægsta verð á flugi til norsku höfuðborgarinnar næstu mánuðina og kemur þar ýmislegt kannski á óvart eins og sjá má á meðfylgjandi töflu.
Þar er fullt verð á flugmiða aðra leiðina frá Keflavík til Oslóar næstu þrjá mánuði miðað við bókunarvélar flugfélaganna klukkan 21.00 þann 13. júlí 2015. Leitað samtímis hjá öllum.
Forvitnilegt er að sjá að Icelandair er að bjóða best í ágúst þegar tillit er tekið til að bæði SAS og Icelandair bjóða tösku með en Norwegian ekki. Hins vegar dalar gengi hins íslenska flugfélags í september og október og eru þá dýrastir allra.
Sannar enn einu sinni þörfina á að framkvæma ykkar eigin verðkönnun þegar taka á stökk út í heim. Það er oftar en ekki fínasta tímakaup sem upp úr því er haft.







