Á vef okkar má finna tæplega 30 greinar um hinn áður alíslenska flugleitarvef Dohop. Sá oft góður til brúksins jafnvel þó á köflum væri lofað helst til mikið upp í ermi. En hvers vegna ekki finnst einn stafur í íslenskum fjölmiðlum um að Dohop hafi verið selt úr landi og það til skattaskjólselskenda er okkur hulin ráðgáta.

Var virkilega eitt merkasta tæknifyrirtæki landsins selt til Bandaríkjanna á síðasta ári og ekki einn íslenskur fjölmiðill vissi af því? Skjáskot
Við höfum leitað dyggilega á vefmiðlum flestra íslenskra fjölmiðla. Við höfum leitað á vef Wikipedia, Bing og Yahoo og við finnum hvorki orð né setningu um að Dohop sé nú hluti af bandaríska skattaskjólsfyrirtækinu Priceline.
Það er engu að síður þær upplýsingar sem birtast á vef Google sé þar leitað að Dohop.
Eins og sést hér til hliðar er fyrirtækið Dohop skráð sem dótturfyrirtæki bandaríska fyrirtækisins Priceline.
Hvers vegna eru það slæmar fréttir?
Jú, Priceline er annar tveggja risa á netferðaþjónustumarkaðnum á heimsvísu. Priceline á og rekur stórfyrirtæki á borð við Expedia og Booking og keypti líka á síðasta ári flugleitarfyrirtækið Momondo, sem er eitt magnaðasta flugleitarfyrirtæki Evrópu. Og Dohop líka eða hvað?
Annar stór mínus við Priceline er, eins og við höfum oft og ítrekað komið inn á, að fyrirtækið er eitt af tuttugu stærstu fyrirtækjum bandarískum sem geyma fjármuni sína á aflandseyjum til að þurfa ekki að greiða neitt til samfélagsins.
Jafnvel verra samt ef Dohop var selt í heilu lagi og ekki einn íslenskur fjölmiðill hefur hugmynd um það enn þann dag í dag. Það er jú ekki eins og fyrirtækið hafi ekki verið að mestu í eigu fyrrverandi þingmanns landsins, Frosta Sigurjónssonar, og því sannarlegt fréttaefni ef þingmaður selur vinsælt tæknifyrirtæki til skattaskjólsunnenda. Þar með er þingmaðurinn fyrrverandi ekki aðeins að leggja lag sitt við skattaskjól heldur og fækka störfum í landinu.
Merkileg tilviljun samt að Frosti Sigurjónsson var þingmaður flokks hvers formaður notaði líka skattaskjól og fannst það bara allt í góðu lagi.
Blessað sé Framsóknarfólk…







