Nú þegar breska flugfélagið Flybe hefur hafið áætlunarflug milli Íslands og Birmingham má fastsetja að aldrei áður hefur samkeppni á flugleiðinni milli Íslands og Bretlands verið grimmari. En hver er nákvæmlega að bjóða best?

Aldrei meiri samkeppni milli Íslands og Bretlands.

Aldrei meiri samkeppni milli Íslands og Bretlands.

Ritstjórn skoðaði vefi allra fjögurra flugfélaga sem til Bretlands fljúga héðan og leitaði að allra lægsta verði á flugi aðra leiðina með sköttum og gjöldum næstu fimm mánuðina eða fram í desember. Bæði með það að augnamiði að benda áhugasömum á hagstæðustu leiðina út en hins vegar líka til að reyna að meta hvort tilkoma Flybe, sem reyndar flýgur ekki til London eins og easyJet, Wow Air og Icelandair, hefði haft sjáanleg áhrif.

Samanburðurinn tekur mið af lægsta fargjaldi alla mánuðina í boði klukkan 18 þann 27. júlí 2014. Wow Air, easyJet og Flybe bjóða ekki farangur með nema gegn gjaldi en farangursheimild innifalin hjá Icelandair eins og venjulega.

Þá lítur þetta svona út en verð Flybe og easyJet færð yfir í krónur miðað við miðgengi á föstudaginn var.

** myndir: aero icarus, nabil molinari, chris, mark harkin