Þá sjaldan íslenskar ferðaskrifstofur bjóða afslætti eða sértilboð er ráð að leggja við hlustir enda flug og ferðir almennt verðlagðar miðað við pabba Bjarna Ben.

Stökktu í sól með litlum fyrirvara segir ÚÚ. En á tilboðssíðunni má finna sólarferðir allt næsta sumarið. Ekki alveg lítill fyrirvari kannski. Skjáskot
Hvað er svo að gerast þessa vikuna? Eitthvað spennó þarna úti handa okkur almúganum?
Ef við kíkjum yfir á vef Plúsferða má finna flug aðra leiðina til Almeríu á Spáni seinnipart ágúst með tonn af farangri niður í 19.900 krónur sem er príma. Sömuleiðis aðra leið til Veróna á Ítalíu í mars fyrir sömu upphæð.
Skottumst yfir á vef Icelandair. Fátt um fína drætti þar en þó má negla þar flug fram og aftur til Köben í marsbyrjun niður í 24 þúsund krónur. Það reyndar á sardínufarrými og ekkert innifalið.
Hjá dótturfyrirtæki Icelandair, Vitaferðum, er nákvæmlega enginn vakandi og allir með fría áskrift að laununum. Það útskýrir hvers vegna þar er enn í boði að hoppa í viku til Kanarí þann 17. janúar fyrir 95 þúsund kall á haus. Illu heilli heyrir sú dagsetning sögunni til.
Arion banki hefur ekki beint verið að sýna landanum lit síðastliðinn áratug eða svo. Þess vegna kemur ekki á óvart að ferðaskrifstofan Heimsferðir, í eigu Arionbanka, er ekki að bjóða neitt sérstakt í neinu. Ja, ekki nema þér þyki stórkostlegt að gista viku á Tenerife í næsta mánuði fyrir 220 þúsund kallinn á prumphóteli með engu inniföldu.
Enginn hringir í heimsmetabók Guinness vegna tilboða Úrval-Útsýn en fyrir þá sem elska Kanaríeyjurnar er töluverður fjöldi „sértilboða” í boði nú. Þau sértilboð virðast sjaldnast merkilegri en hefðbundin fargjöld en kannski erum við hér lesblind hægri vinstri. Það vissulega í boði að gista viku í febrúar á ágætum stað á Tene eða niður i 116.500 krónur á mann. En þá þarf líka að hafa með sér eins og tvö börn eða svo plús makann.
Ekkert frámunalega spennandi í boði þessa vikuna. En hver veit, kannski vellur fram eitthvað safaríkt í næstu viku…







