Hvað lífið er dásamlegt fyrir þau okkar sem deyja lítið eitt hvern þann dag sem við getum ekki skoðað heiminn. Nú ætlar norska lággjaldaflugfélagið Norwegian brátt að bjóða beint flug milli London og Keflavíkur.

Ýmsar leiðir út í heim gott fólk :)

Ýmsar leiðir út í heim gott fólk :)1

Fantagóðar fréttir fyrir ferðaþyrsta. Ekki bara vegna þess að Norwegian er ítrekað valið besta lággjaldaflugfélag Evrópu heldur ekki síður vegna þess að enn bætist í samkeppnina til Gatwick flugvallar frá Íslandi sem, eins og vitiborið fólk veit og skilur, þýðir enn lægri fargjöld fyrir landann.

Norwegian mun hefja þjónustuna í nóvember næstkomandi og slæst þar í hóp með Icelandair, Wow Air, British Airways og easyJet sem berjast um hylli fólks þá leiðina. Flogið verður þrisvar í viku.

Húrra!