Fararheill hefur ekki alltaf séð hlutina sömu augum og Skúli Mogensen en það verður ekki tekið af karli að hann hugsar stórt og hvort sem þakka má kænsku eða hreinni heppni, nema bæði sé, hefur flugfélagið hans náð góðri fótfestu á markaðnum.

Vigdís Hauks hverfur brátt í gleymskunnar dá en Skúli Mogensen vill miklu meira. Mynd Wow Air
Aðeins rétt rúm fjögur ár eru síðan vél skreytt merkjum Wow Air hóf sig til flugs fyrsta sinni frá Keflavík. Þá var Skúli Mogensen og hans fólk, blaut bak við eyru í bransanum og fengu duglegan mótvind frá þáverandi „risafyrirtæki“ á íslenskum markaði; Icelandair.
Síðan hafa hlutirnir gerst hratt og við hér á ritstjórn oft velt fyrir okkur hvort Skúli hafi séð fyrir sér hversu ótrúleg auglýsing það var fyrir klakann þegar Eyjafjallajökull gaus og setti allt á annan endann víða um veröldina. Markaðsmenn sumir vilja meina að áhrifaríkar auglýsingaherferðir hafi skipt sköpum að fjölga ferðafólki á klakanum úr 100 til 200 þúsund hræðum í tæplega þrjár milljónir á fimm árum en við hér hjá Fararheill blásum á það kjaftæði. Það var Eyjafjallajökull, gosið og ekki síst sú magnaða umfjöllun sem það gos vakti sem kom Íslandi á kortið fyrir alvöru. Ekki skemmdi fyrir að hin auma íslenska króna var bæði með óstöðvandi blóðnasir og fjötruð niður eins og fólk með eignir í Bolungarvík.
Þó Skúli hafi rúllað Wow Air æði víða á skömmum tíma virðist sem enn sé nóg lýsi eftir í kauða. Í viðtali við ferðamiðilinn Skift fyrr í þessum mánuði gerði Skúli að því skóna að ekki aðeins séu þrír til fjórir nýir áfangastaðir í Bandaríkjunum hugsanlegir á næstunni heldur og flug til Asíu.
Herra Mogensen telur að Ísland farsæla frón sé alveg príma staðsetning fyrir Asíuflug fyrir Kanann og Evrópubúa sem vilja komast ódýrt til Pattaya, Balí eða Góa á næstu árum. Alls ekki síðri staðsetning og borgir á borð við Doha og Dubaí í Mið-Austurlöndum sem nú gegna mikilvægu hlutverki sem miðstöð flugsamgangna milli Evrópu og Asíu þrátt fyrir að hafa verið bölvuð krummaskuð um aldaraðir.
Varla annað hægt en taka hatt ofan fyrir stórhugum sem láta verkin tala eins og Skúli hefur sannarlega gert. Kannski getur landinn flogið beint til Bangkok, Singapúr eða Malasíu fyrir klink og ingenting eftir ár eða tvö. Fararheill syrgir það ekki 🙂







