
Bologna á Ítalíu er um margt merkileg borg og örstutt í kostulega náttúru. Mynd Flickr/Pedriali
Hvað er svo málið?
Jú, Play að tilkynna um fjóra nýja áfangastaði sína næsta sumarið í ofanálag við nýja áfangastaði sem þeir kynntu fyrir nokkrum vikum síðan. Að þessu sinni bætast við Stuttgart í Þýskalandi, Prag í Tékklandi, Bologna á Ítalíu og Lissabon í Portúgal.
Algjörlega brilljant stöff ef einhver spyr okkur (sem auðvitað enginn gerir 🙂 .)
Ók, en hvað er svona merkilegt eiginlega?
Jú, sú staðreynd að miðað við þessa áfangastaði og þá þrjá síðustu á undan; Stafangur, Gautaborg og Þrándheim virðast forsvarsmenn Play átta sig á því að ef ekki er sterkur grunnur á heimaslóð hrynur klabbið til grunna um leið og einhver blæs að ráði. Samanber grísina þrjá og úlfinn vonda.
Stuttgart fær reyndar aldrei nein sérstök verðlaun fyrir eitt né neitt nema ef vera skyldi fortíðarþrá eftir afrekum Ásgeirs Sigurvinssonar. Borgin sjálf í ljótari kantinum og engin ósköp þar að upplifa en þaðan er skammt í ótrúlega flotta staði á borð við hinn fræga þýska Svartaskóg (Schwartzwald.)
Prag er betri heimsóknar ef fólk nennir engum þvælingi. Þar hægt að vitna kostuleg mannvirki á röltinu í borginni en hún er líka tiltölulega ódýr og ekkert þarf að fjölyrða um bragðgæði tékkneskra bjóra.

Þessi er fantagóð í öllu tilliti eins og lesa má um í vegvísi okkar um Lissabon. Mynd Flickr/Tetue
Bologna er afar sérstök heimsóknar. Sumir elska en aðrir ekki eins og gengur ef það ekki af henni tekið að þaðan er skammt að fara í fyrsta flokks gönguferðir um ótrúleg fjöll og firnindi. En borgin sjálf er ekki slæm í neinu tilliti að okkar mati.
Risarúsínan í þessum pylsuenda er svo Lissabon. Sú lengi verið meðal allra bestu höfuðborga í Evrópu að okkar mati og hafi einhver aðrar skoðanir tökum við hér þá áskorun hvar sem er og hvenær sem er. Ekki aðeins elskar sólin Lissabon heldur og þaðan stutt í magnaðar perlur á borð við Sintra, Cascais, Estoril, Setúbal eða jafnvel fagrar strendur Algarve. Extra bónus að almennt verðlag í Portúgal allri og Lissabon þar meðtalin er með því allra lægsta í álfunni. Ef einhver fáráðlingur fílar ekki Portúgal tekur aðeins fjórar stundir að aka til Andalúsíu á Spáni.
Ef forsvarsmenn Play væru ekki að fífla íslensk verkalýðsfélög og starfsfólk þar með færum við hér með himinskautum. En það er auðvitað full ástæða til að fljúga EKKI með þeim. Ekki aðeins stofnuðu þeir megasúrt eigið verkalýðsfélag heldur og eru tveir úr æðstu stjórn grunaðir um alvarleg skattalagabrot.







