E ins og við höfum áður greint frá bjóða flugfélög okkur oft upp á heldur dapurlegan flugtíma frá Spáni í áætlunarflugi. Fólk heim á leið frá Alicante eða Barcelóna þarf að gera sér að góðu að eyða tíma langt fram á kvöld og jafnvel nótt til að geta sest um borð og haldið heim.

Betri stofan á flugvellinum í Alicante er ívið betri biðstofa en hinn almenni brottfararsalur

Betri stofan á flugvellinum í Alicante er ívið betri biðstofa en hinn almenni brottfararsalur

Ólíkt sömu flugfélögum sem virðist nokk sama um það óhagræði sem þetta skapar fjölmörgum þá fór ritstjórn Fararheill strax á stúfana til að finna lausnir. Okkur finnst einfaldlega ekki boðlegt að láta viðskiptavini sem þurfa yfirleitt að yfirgefa hótel sín um hádegisbil bíða í tíu, tólf klukkustundir eftir flugi heim á leið.

Auðvitað er lítið mál fyrir frískt fólk að dunda sér í Alicante eða Barcelóna í tíu tíma svo lengi sem fólk fær að geyma farangur sinn á hótelinu. Sem er þó ekki alltaf mögulegt. Þar að auki eru fjölmargir með börn og það getur verið þrautin þyngri að hafa ofan af þeim í fleiri klukkustundir.

Fyrir þá sem ekki geta það eða hafa ekki þolinmæði til að hanga á sólbrenndri ströndu, kaffihúsi, verslunum eða börum í fleiri stundir þá er til eitt ráð sem kannski getur hjálpað; betri stofur flugvallanna.

Bæði á El Prat flugvellinum í Barcelóna og Alicante-flugvelli gefst fólk kostur á að kaupa aðgang að betri stofum, VIP, og í ljós kemur að það getur margborgað sig líka. Í þeim er sjaldan erill, sófar djúpir og þægilegir, enginn amast við því að einhver blundi og drykkir og smáréttir fást frítt á barnum og í eldhúsinu. Í viðbót er þjónusta hér, dagblöð við höndina og sjónvarpsskjáir svo eitthvað sé nefnt.

Allra best er að aðgangurinn kostar ekki nema 35€ á mann eða sem nemur tæplega fjögur þúsund krónum eða svo. Það kann að virðast hátt en keyptu mat og vínglas fyrir tvo í hinum almenna farþegasal og þú ert komin langleiðina upp í þann kostnað.

Engin kjörstaða en það er illskárra að láta fara vel um sig ef bíða þarf klukkustundum saman á flugvelli en að hanga á hörðum stólum og fá lítinn frið í aðalbrottfararsal beggja flugvalla. Á báðum stöðum er hægt að kaupa aðgang við upplýsingaborð flugvallanna.