
Ferðaskrifstofan Bjarmaland býður margar forvitnilegar ferðir. En eigandinn missir sig í ruglinu. Skjáskot
Bjarmaland ein af allnokkrum íslenskum ferðaskrifstofum sem bjóða safaríkar ferðir um aðra, og oftast betri staði, en Costa Adeje, Playa del Inglés, Alicante eða aðra þá staði sem landinn heimsækir hugsunarlaust.
Eða eins og við höfum fjallað ítrekað um þá eru hefðir og venjur, heima sem og að heiman, helsta ástæða þess að fólk deyr fyrr en ella. Það er jú klárt samasemmerki milli þess að vera forvitin, að prófa nýja hluti og langlífi eða sætta sig alltaf við þetta sama gamla þekkta. Með öðrum orðum; við erum prógrammeruð til að prófa og læra nýja hluti allt lífið og ef við gerum það ekki kemur dauðinn fyrr en ella.
Að því sögðu eru hér að neðan athugasemdir forstjóra Bjarmalands við gagnrýni Fararheill. Svör forstjórans eru skáletruð:
Að öðrum innlendum ferðaskrifstofum ólöstuðum þá eru fáir aðilar að bjóða landanum jafn forvitnilegar ferðir erlendis og ferðaskrifstofan Bjarmaland. Rússland, Indland, Kína, Rúmenía og Víetnam svo aðeins fáein dæmi séu tekin. En það hjálpar ekkert að eigandinn og eini starfsmaðurinn sé hrópandi á útvarpi Sögu 24/7.
Við vinnum á vefnum og erum með nokkra starfsmenn, einnig á verktakagrundvelli en ég er framkvstj.
Ferðaskrifstofan Bjarmaland býður margar forvitnilegar ferðir. En eigandinn missir sig í ruglinu.
Sumt fólk þarf að kunna sig og ekki síst ef það rekur ferðaskrifstofu. Þar fær Haukur Hauksson, fréttaritari útvarps Sögu í Rússlandi og eigandi Bjarmalands, feita falleinkunn.
Stór spurning! Fólk þyrstir í aðrar upplýsingar um Rússland en þær voðafréttir sem koma á „Mainstream“. Margt er líka að í landinu og kem ég inná það líka í leiðsögn og sögulegum pælingum.
Gaurinn kann að leiða hópa um fjarlæg lönd. Hann kann kynstrin öll af merkilegum sögum um hina og þessa kima veraldar og ekkert vantar á að hann er allur af vilja gerður til að aðstoða ef eitthvað bjátar á í ferðum hans. Plús auðvitað að hann býður upp á sérdeilis forvitnilegar ferðir svona ef landinn vill eitthvað annað en enn eina dvölina í Torrevieja. En það er eitthvað verulega rangt við að Vladimir Pútín hafi alltaf rétt fyrir sér og sé alltaf rétt í þann mund að bjarga heiminum.
Pútín er svertur sem hægt er í vestrænni pressu, ég veit mikið um hann og fylgist vel með, læt margt flakka.
Sem er ályktun sem má draga af röfli Hauks við korters hlustun á útvarpi Sögu. Sama útvarps og telur skattsvikarann Sigmund Davíð Gunnlaugsson einhvern merkilegasta mann Íslandssögunnar síðan Jón Sigurðsson var og hét. Forstjóri Vita ferða er ekki í fjölmiðlum daginn út og inn að besserwisast um hitt og þetta undir sólinni. Þaðan af síður forstjórar Húsasmiðjunnar, Kynnisferða, Íslandsbanka, Gamma, Origo, Bónuss eða Pétursbúðar. Af þeirri einföldu ástæðu að þú vilt ekki að hugsanlegir viðskiptavinir fái hugsanlega ranga mynd af þér og þínum og snúi viðskiptum sínum annað.
Ég hef starfað sem fréttaritari í 32 ár (lýsti falli heimsveldis í rúv) ekki er lakara að gædinn sé vel inni í málum og hafi yfirgripsmikla þekkingu þar sem hann vinnur.
Og eftir að hafa hlustað á Hauk síðustu dægrin er enginn hér að mæla með ferðum Bjarmalands lengur.
Vond og leiðinleg ályktun.







