Á hugasamir hafa til miðnættis í kvöld til að nýta sér 40% afslátt af tilteknum fargjöldum flugfélagsins Play til hinna ýmsu forvitnilegu staða. Sjálfsagt að nýta sér það fyrir ævintýraþyrstann landann en tilboð Play vekur samt æði margar spurningar.

Tilboðið gildir á ákveðnum dagsetningum til Barselóna, Parísar, Berlínar, London og Köben í júlí og ágúst.

Hmmm! Einhver lykt við þetta.

Byrjum á fregnum af Play í fjölmiðlum í byrjun þessa mánaðar. Fréttum á borð við þessa hér hjá Mogganum þar sem forstjóri Play segir annað hvert flugsæti þegar selt í júlí og þéttbókað sé í allt flug í ágúst og september. Í öðrum fjölmiðli á sama tíma segir forstjórinn að sala sé róleg í júlí en roksala sé í ágúst og út haustið.

Hraðspólum svo þrjár vikur fram í tímann og Play auglýsir mjög góðan afslátt á flugsætum í júlí og ágúst.

Einhverjum öðrum en okkur hér sem finnst það skjóta skökku við? Það er jú ekki ein einasta ástæða til að gefa feita afslætti ef nokkurri vöru eða þjónustu ef eftirspurn er húrrandi góð. Þvert á móti eiginlega. Við slíkar aðstæður hækka flest fyrirtæki, og flugfélög sérstaklega, verð á vörum og þjónustu og forstjórarnir glotta í bankanum.

Þess vegna er Play annaðhvort að slá hendi mót betri tekjum en ella eða að forstjórinn var bara að bulla steypu  í byrjun júlí þegar allt var sagt seljast upp eins og heitar lummur með rjóma, sykri og sultu.

Með tilliti til að forstjórinn er grunaður um alvarleg skattsvik og starfaði lengi fyrir megasvindlarann Pálma Haraldsson, þykir okkur líklegra en ekki að Birgir Jónsson sé innantómur bullukollur. Sæti hjá Play líklega ekki að seljast eins og heitar lummur…