Grand Budapest Hotel. Nafnið eitt og sér hljómar spennandi ef þú átt tonn af peningum sem þú veist ekki hvað þú átt að gera við og langar að sjá ungversku höfuðborgina. Og viti menn, á vef Tripadvisor má finna fínustu umsagnir um þetta hreint ágæta hótel.

Skjáskot úr kvikmyndinni Grand Budapest Hotel. Ef marka má stærsta ferðamiðil heims, Tripadvisor, er þetta raunverulegt hótel.

Nánar tiltekið 49 síður af einkunnum sem viðskiptavinir hafa gefið hótelinu eftir dvöl á Grand Budapest Hotel.

Sem er sérdeilis merkilegt sökum þess að Grand Budapest Hotel er ekki til í raunveruleikanum. Hótelið atarna er ein söguhetjanna í frægri bíómynd bandaríska leikstjórans Wes Anderson. Bíómynd sem heitir einmitt Grand Budapest Hotel.

Það segir kannski sitt um miður góða heilastarfsemi fjölda fólks að ekki aðeins finnist sérstök grein um Grand Budapest Hotel á vef stærsta ferðamiðils heims. Ekki síður ógnvekjandi að tonn af liði skrifar þar umsagnir eins og það sjálft hafi eytt vikum saman á hótelinu.

Það tók Tripadvisor aðeins rúmt ár að vara við bókunum á Grand Búdapest Hotel í Ungverjalandi. Það þrátt fyrir að hótelið finnist hvergi í landinu. Skjáskot

Kannski góðlátlegt grín hjá fólki og kannski einhverjir sem lifa kvikmyndir sem raunveruleikann sjálfan. En hvað okkur varðar þá segir það alla sögu að á Tripadvisor skuli raunverulega vera hægt að leita hótelið uppi og lesa umsagnir eins og um öll önnur raunveruleg hótel heimsins.

Bendir það ekki til þess að ef Jón og Gunna geta gefið einkunn um hótel sem ekki fyrirfinnst í raunveruleikanum að vel kann að vera að allar aðrar einkunnir vefmiðilsins séu kannski vafasamari en margur heldur. Því ef Tripadvisor er með lið fólks að ganga úr skugga um stöku umsagnir til að sönn mynd fáist af gististöðum heimsins hvers vegna tók þá fleiri mánuði að vara fólk við að bóka gistingu á hóteli sem ekki finnst í raunveruleikanum?

PS: Í guðanna bænum sjáið kvikmyndina. Hún er sérstök og brilljant 🙂