Ólíkt íslenskum stjórnvöldum sem í tali og tónum gáfu Icelandair alls ókeypis ríkisábyrgð á rekstrinum um ókomna tíð, eru hollensk stjórnvöld ekki alveg reiðubúin að gefa hollenska flugfélaginu KLM slíkt fríspil.

Hollenska stórflugfélagið KLM gæti verið á leið í þrot. Mynd Gerard Stolk

KLM, sem löngum hefur þótt meðal þeirra fremstu í Evrópu og fór fyrir nokkru í sæng með hinu franska Air France, gæti farið yfir um á næstu misserum. Það helgast af því að ríkisaðstoð hollenskra yfirvalda til flugfélagsins vegna Kófsins hefur verið afturkölluð.

Hollenska ríkið samþykkti að veita KLM feita aðstoð hér á sumarmánuðum til að bregðast við hrapallegri stöðu flugfélagsins í kjölfar Kófsins. Sú aðstoð var þó ekki gefins. Krafa var gerð um tilteknar rekstaraðgerðir til að gera flugfélagið láns og rekstrarhæft.

Nú er komið að skuldadögum og hollensk yfirvöld meta það svo að yfirmönnum KLM hafi ekki tekist að ná böndum á feitum hallarekstri svo sómi sé að né heldur náð viðunandi samningum við verkalýðsfélög landsins. Það merkir að tugmilljarða króna ríkisframlag dettur dautt niður.

Það aftur merkir að KLM sem flugfélag er á síðustu metrunum. Ráð að bóka ekki mikið með þeim alveg á næstunni.