D abbadona! Vestfirðir toppa lista hins fræga ferðabókaútgefanda Lonely Planet um bestu héruð heims að sækja heim 2022. Sekúndum síðar vart þverfótað fyrir greinum og útvarpsþáttum þar sem dásamað er hversu dásamlegt þetta sé er fyrir land, þjóð, ferðaþjónustufyrirtækin og Vestfirði sérstaklega. En er það svo í raun?

Kostulega fallegt land með gnótt af ógleymanlegum minjum. En heimsókn til Belís ekki alveg örugg ferðafólki. Mynd Flickr/BillB

Drögum andann aðeins inn og rólega út aftur.

Staðreyndin er að Vestfirðir hafa alltaf verið útundan hjá bæði erlendum og innlendum ferðamönnum. Ekki vegna þess að þeir heilli ekki almennt eins og svörtu strendurnar á Suðurlandinu, djúpir firðir Austurlands eða mörg þúsund náttúruperlur Norðurlands. Öllu frekar eins og Wales þegar við þvælumst um Bretland, mörg þúsund fagrar eyjur Noregs þegar við dúllum okkur þar eða magnaðir fjallstoppar Kanaríeyja og Mallorca þegar við sleikjum sólina á þeim ströndunum.

Við vitum öll upp á hár að fagrar eyjur Noregs eru heimsóknar virði og gott betur en það. Við vitum líka að Wales er hreint ekki síðri heimsóknar en aðrir staðir á Bretlandi. Í sumum tilfellum er mun meira að sjá í Wales en innanlands í Englandi. Gallinn er að okkur finnst það bara of mikið ves. Það kostar ekkert mikið ves að beygja til hægri miðja vegu á leið frá Liverpool til London og taka inn fegurð Wales. Það kostar heldur ekkert mikið ves að mæta þeim aragrúa ferja sem húrra þér yfir á magnaðar eyjur Noregs ef verið er að aka um vestanvert landið. Þaðan af síður þarf meira en líkamlega getu og vilja til að skottast upp falleg fjöll og firnindi á sólríkum eyjum Miðjarðar- eða Atlantshafs.

Það kostar ekkert mikið ves en það kostar samt ves. Og eru ekki ferðalög á heimsvísu nógu mikið ves fyrir okkur flest til að bæta ekki gráu ofan á svart?

Með öðrum orðum; ef vilji er til að heimsækja Vestfirði og staldra við á öllum þeim stöðum sem fallegir eða forvitnilegir eru og aðgengilegir bílum þá þarf að lágmarki tvo daga til og sennilega meira. Langi fólk á virkilega fáfarnar slóðir eins og á Hornstrandir í ofanálag erum við að tala um fjóra til fimm daga að lágmarki. Heil vika er nærri lagi.

Gott og blessað með það. Vika á Vestfjörðum er bara mannbætandi í alla staði.

En, og það er stórt EN, flest ferðafólk hefur ekki viku til umráða á Vestfjörðum og nær samt að rúlla um landið að öðru leyti og vitna allt það dásamlega sem Norður-, Austur-, Vestur- og Suðurland hafa upp á að bjóða. Svo ekkert sé minnst á höfuðborgarsvæðið og dúlleríið sem er í boði á þeim slóðum. Til þess alls þarf þrjár vikur lágmark og helst fjórar til að vel sé.

Hvar sem fólk kemur í Lagos í Nígeríu er fólk, fólk, fólk og fólk. Í þessari röð. Ferðafólk heppið að komast spottakorn innan borgarmarkanna. Myns Flick/AtedotounAjibade

Gallinn sá að niðurstöður rannsókna sýna óumdeilanlega að erlent ferðafólk staldrar örsjaldan við á landinu í heilan mánuð eða lengur. Stærstur hluti erlends ferðafólks eyðir hér innan við viku og það er ekki að fara að breytast þó einhver illa borgaður blaðamaður á Lonely Planet segi að það sé sjittið.

Hvers vegna erum við fávitarnir hér hjá Fararheill að leggja orð í belg vegna þessa? Jú, sökum þess að ef viti borið fólk skoðar þessa „frægu” lista Lonely Planet um bestu áfangastaðina 2022 koma vöfflur, pönnukökur og rjómi með á yfirborðskenndasta fólk.

Bestu borgirnar 2022?

Eða hvað skal halda um að Auckland á Nýja-Sjálandi sé mest spennandi borg heims? Heimamenn vissulega skemmtilegir en nákvæmlega ekkert er sérstaklega spennandi fyrir erlent ferðafólk í þeirri borginni. Hún faktískt frekar leiðinleg heimsóknar í nánast öllu tilliti…

En ókei, kannski mistök græningjans á ritstjórn hjá Lonely Planet. Skoðum næstu sætin á listanum. Næst kemur Taipai á Tævan. Jebbs, hún er frábær heimsóknar. Þriðja sætið vermir Freiburg í Þýskalandi! Ókei, ekkert súperfrábær en góð samt. Fjórða sætið tekur Atlanta í Bandaríkjunum. Hmmm. Nauðaómerkileg og kolmenguð bílaborg en þó bara kettlingur miðað við mengun og vibba í Lagos í Nígeríu sem vermir fimmta sætið. Lagos??? Hvað eru menn á ritstjórn Lonely Planet að reykja eiginlega?

En kannski sjá byrjendurnir bara um að velja „bestu” borgirnar og vanir blaðamenn sjá um rest?

Bestu héruðin 2022?

Skoðum listann yfir bestu héruðin. Sama lista og Vestfirðir toppa. Hver er þar í öðru sæti? Jú, mesta kolanámusvæði Bandaríkjanna, Vestur-Virginía, þar sem enginn er maður með mönnum nema státa af rykföllnum lungum og helst krabbameini líka.

Malbik, steinsteypa og bílaumferð út í eitt. Velkomin til Atlanta. Mynd Flickr/TimothyJ

Þriðja sætið prýðir hið mjög-svo-auðvelt-að-bera-fram Xishuangbanna sem er gróflega það hérað Kína sem liggur við landamæri Laos annars vegar og Búrma (Myanmar) hins vegar. Enginn hér heimsótt svæðið en heimsminjanefnd Sameinuðu þjóðanna fannst mikið til koma og miðað við að nyrstu hlutar bæði Búrma og Laos eru kostulegir er þetta líklega fantagott stopp.

Í fjórða sætinu kemur Kent á Englandi. Líklega þekktast fyrir hina hvítu klettastrendur sem vissulega eru fallegar en að svæðið státi formlega af titlinum „framúrskarandi náttúrleg fegurð” er ekkert annað en diss á raunverulega framúrskarandi svæði á Íslandi og Noregi. Því fyrir utan fallegan kalksteininn við ströndina er Kent ekkert til að hrópa húrra fyrir.

Við viljum svo varla fara að skoða fimmta sætið sem reynist vera Puertó Ríkó!!! Eyríkið sem státar af einhverri spilltustu yfirstjórn sem sögur fara af. Eyríkið þar sem glæpir og viðbjóður eru svo algengir að Chicago prísar sig sæla. Eyríkið sem lagðist á hliðina þegar fellibylurinn María lagði eyjuna í rúst 2017 og tæpum fimm árum síðar eru enn hverfi á eynni sem eru án rafmagns og þjónustu.

Bestu löndin 2022?

En kannski hafa fræðingar Lonely Planet raunverulega lagt haus í bleyti hvað varðar bestu lönd heims 2022?

Sigurvegarinn reynist vera Cook-eyjur lengst úti á ballarhafi Kyrrahafs. Kostulegur staður sannarlega en þangað kostar hönd, fót og feita innistæðu í bankanum að komast og Cook-eyjur ekkert merkilegri en Bora Bora eða Fiji sem eru sæmilega í grenndinni. Ef eitthvað er mun lægra þjónustustig á eyjum Cook en á hinum. Plús að þangað er ekkert komist í beinu flugi nema frá Los Angeles, Ástralíu eða Nýja-Sjálandi…

Sennilega minnst spennandi áfangastaðurinn á öllu Nýja-Sjálandi. Höfuðborgin Auckland. Mynd Flickr/ElinUk

Noregur tekur annað sætið og nákvæmlega ekkert við það að athuga. Fegurra land er vandfundið þó allt hér sé dýrt með afbrigðum fyrir mestanpart mannkyns.

En svo versnar í því. Máritíus undan austurströnd Afríku er í þriðja sætinu. Hmmm! Þetta sama Máritíus og státar af olíukenndum ströndum á 140 kílómetra kafla eftir strand olíuflutningaskips síðasta vetur. Sama Máritíus hvers íbúar glíma við 60% atvinnuleysi og 44% íbúa lifa undir fátæktarmörkum. Sama Máritíus og hefur fellt einstaka jómfrúarskóga hraðar en Brassar Amazon.

Fjórða sætið fær Belís í Suður-Ameríku. Löngum verið mekka glæpamanna enda þar fátt um löggæslu en landið vissulega stórkostlegt með ótrúlegum fornum minjum á ólíklegustu stöðum.

Slóvenía tekur fimmta sætið og er vel að því komið. Afar fallegt land, fólkið mjög vinsamlegt ferðafólki og verðlag langt undir því sem gerist í helstu nágrannalöndum.

Ýmislegt við það að athuga að Máritíus, Puertó Ríkó og Belís komist á lista yfir bestu áfangastaði heims árið 2022. Allt geysifallegir staðir per se en landeyðing mikil í þeim öllum og glæpir meira sport en lögreglumál. Í þeim öllum á heimafólk betra skilið en það hefur en þá þurfa líka peningar ferðafólks að skila sér til fátæks almúgans en ekki lúxushótela í eigu erlendra aðila sem gjarnan geyma sitt í skattaskjólum eins og Sigmundur Davíð…