„Þessi samruni mun hafa í för með sér að neytendur enda uppi með reikninginn – í hærri flugfargjöldum, ýmsum auknum viðbótargjöldum og mun færri valmöguleikum. Aðgerðir okkar miðast að því að gera það sem er best í þágu neytenda með því að tryggja ríka samkeppni á markaðnum.“

Lögbann á samruna flugfélaga vestanhafs er æði merkileg tíðindi.

Lögbann á samruna flugfélaga vestanhafs er æði merkileg tíðindi.

Óskandi væri að hér væri verið að vitna í niðurstöður þeirrar íslensku stofnunar sem kennir sig við samkeppni. Sú stofnun er bæði svelt af fjár- og vitsmunum sem sýnir sig best í því að rannsókn á yfirtöku Wow Air á Iceland Express á síðasta ári leiddi af sér viðamikla skýrslu sem að stórum hluta var tileinkuð Icelandair og var töluvert út í hött að mati Fararheill.

Nei, hér að ofan er verið að vitna í dómsmálaráðherra Bandaríkjanna en það ráðuneyti ákvað í vikunni að setja lögbann á samruna flugfélaganna American Airlines og US Airways með þeim rökum að slíkt væri ekki jákvætt fyrir neytendur í landinu.

Nú er enginn í ritstjórn trúaður á æðri mátt en við leyfum okkur samt að segja HALLELÚJAH. Ekki öll nótt úti enn ef stjórnvöld vestanhafs, sem eru gegnsýrð af lobbíisma og spillingu oft á tíðum, finna ærna ástæðu til að leggja bann við að fyrirtæki geri hvað sem þau vilja á kostnað borgaranna eins og raunin hefur verið hér á klakanum frá örófi alda.