Það er erfitt að venja sig af góðum hlutum. Þess vegna hefur Jóhanna Kristjónsdóttir, blaðamaður og fararstjóri, blásið til enn einnar Íransferðar sinnar en þangað hefur hún haldið með íslenska ferðamenn um áraraðir. Næsta ferð verður hennar hinsta.

Mikill áhugi hefur verið á Íransferðum Jóhönnu Kristjónsdóttur gegnum tíðina og nú allra síðasti sjéns
Það er fólk sem farið hefur með Jóhönnu sammála um að ferðir hennar til Íran og annarra staða séu hreint makalaust góðar. Það helgast auðvitað af því að Jóhanna þekkir bæði króka og kima borga og bæja sem og söguna á bak við sömu króka og kima. Það eru einmitt sögurnar sem eru rjóminn ofan á kökuna.
Síðasta ferðin verður farin í apríl næstkomandi og að því er fram kemur á vef Jóhönnu mun kostnaður vera kringum 550 þúsund krónur plús gjald fyrir vegabréfsáritun og þjórfé. Nánar á vef Jóhönnu hér.
Svona fyrir þá sem ekki vita hversu fallegt er í Íran er ráð að skoða þessa myndasyrpu Fararheill.







