Samkvæmt fréttum er Skúli Mogensen næstum kominn með upp í kok. Flugstöð Leifs Eiríkssonar allt of lítil fyrir alheimsplön Mogensens og næstum tími til kominn að yfirgefa skerið með fyrirtækið.

Skúli í stuði með undirmönnum í Leifsstöð. Mynd Isavia
Hvar höfum við heyrt þetta áður? Kannski hjá öllum þeim fyrirtækjum sem sjá á eftir því að greiða uppsetta skatta og gjöld á Íslandi og vilja lægri skatta og meiri fríðindi?
Skúli hefur gert margt gott og margt rétt. Hann hefur komið á fót flugfélagi sem virðist bera sig, veitir að mestu góða þjónustu enda flugþjónar íslenskir og duglegir eins og þeim er tamt. Flugfélag sem veitir samkeppni á vinsælum flugleiðum og ekki veitir af á fákeppnismarkaðinum á Íslandi. Margsannað að Icelandair heimtar feitari seðla á öllum þeim leiðum sem það fyrirtæki hefur einokun á en öðrum flugleiðum.
En er ekkert undarlegt við að maður sem græddi formúgur á að selja fyrirtæki úr landi, geymdi milljarða sína á erlendum bankabókum til að losna við íslenskan skatt og býr samkvæmt fréttum formlega erlendis til að þurfa sjálfur persónulega ekki að greiða íslenskan skatt sé að kvarta og hóta yfir þjónustu sem er kostuð af íslenskum skattborgunum?
Kannski væri meira fé aflögu til að stækka Leifsstöð fyrr og gefa Wow Air meiri byr undir vængina ef milljarðamæringar eins og Skúli borguðu skatta og skyldur eins og við hin. Það er jú Ísland sem er að trekkja að alla þessa erlendu ferðamenn sem er undirstaða þess að vöxtur flugfélags þíns er umfram allar væntingar ár eftir ár.
Hvernig væri ef eins og einn milljarðamæringur sýndi smá lit, greiddi sitt til keisarans áður en hann hefur upp raust sína um að flýja klakann af því að einhver ríkisþjónusta er langt á eftir áætlun? Hvers vegna skyldi sú þjónusta vera á eftir áætlun Skúli? Kannski búinn að gleyma árinu 2008 þegar ríkið og fólkið með fór nánast fram af brúninni? Það eru aðeins sjö ár síðan svo það ætti að vera þér í fersku minni. Nei, annars. Þú bjóst erlendis og varðst ekki var við neitt.
Herra Mogensen er ekki sá fyrsti sem kvartar og kveinar yfir að greiða skatta. Primera Air, lesist Heimsferðir, yfirgaf klakann fyrir grænni skattahaga fyrr á árinu. Þeir fluttu til Litháen. Það hljómar ekki svo illa. Ekki eins og Litháen sé skattaparadís?
Nema hvað, Litháen er gagnvart erlendum fyrirtækjum einu skrefi frá því að teljast formlega skattaparadís. Skattur á smærri fyrirtæki í landinu nemur heilum FIMM prósentum. Það er kannski eitthvað fyrir Skúla Mogensen.
Fínt að eiga peninga Skúli. Þú hittir sætar stelpur í massavís, átt frátekna heilsíðu í Séð og Heyrt, Eiríkur Jónsson og Smartland elska flottar myndir af kallinum á djamminu og þú kemur vel fyrir í erlendum fjölmiðlum…
En skiptir máli hvort þú átt sjö milljarða króna eða sjötíu milljarða króna? Ert þú hamingjusamari með sjötíu millur en sjö millur? Ertu betri manneskja með því að flýja skatta? Flótta sem kemur niður á venjulegu fólki á Íslandi? Kaupir þú flottari föt, bíla, hús fyrir sjötíu milljarða en sjö? Á sama tíma og þú ræður írskt eða litháískt starfsfólk í stað þess íslenska?
Ljóst má vera að ef Skúli flytur Wow Air frá Íslandi hljóta flugmálayfirvöld að strika yfir þá góðvild sem Wow Air nýtur og hefur notið fyrir það eitt að vera íslenskt. Eftirleiðis ættu farþegar Wow Air að þurfa að nota hlið 49 en ekki fimm eða sex.
PS: boðið um viðtal stendur ennþá Skúli. Við gerum okkur grein fyrir að þú vilt bara fara í drottningarviðtöl en svona ef þú skiptir um skoðum þá er netfangið fararheill@fararheill.is







