Pistlar

Hið fréttnæma eina og hálfa prósent

  08/12/2011desember 23rd, 2013No Comments

Fræg tilvitnun segir að ekkert sé jafn gamalt og fréttir gærdagsins. Má til sanns vegar færa á Íslandi nútímans þar sem hvert „hitamálið“ á fætur öðru endist sólarhring eða svo áður en næsta stóra mál tekur við.

En tvær fréttir virðast vera eilífar í íslenskum fjölmiðlum þegar líða fer að jólum hvert ár. Annars vegar eilíf umræða um slæm áhrif bóksölu stórverslana á bókabúðir um jólin en hin fréttin er ávallt um mikla sókn Íslendinga í verslunarferðir erlendis. Þær fréttir koma forsvarsmönnum verslunarmanna á óvart ár eftir ár.

Nú þykir fréttnæmt að fólk flykkist til Boston fyrir jólin og hafa sérstaklega fréttastofa RÚV og Morgunblaðið gert því góð skil. Rúmlega fimm þúsund manns fljúga til þeirrar borgar fyrir þessi jól og versla jólagjafir sínar og flestir hika ekki við að greiða öll gjöld og tolla við komuna heim. Það er að segja að fólk reiknar út að það borgar sig að versla í Bandaríkjunum og greiða gjöld við heimkomu heldur en versla í íslenskum verslunum.

Fréttin er í raun engin því landsmenn hafa verslað erlendis um áratugaskeið þegar færi gefst á. Einungis borgirnar eru misjafnar ár frá ári. Einu sinni var Dublin mekka verslunarferða landans. Glasgow stóð einnig fremst í flokki í nokkur ár og velflestir ferðamenn eyddu duglega í Danmerkur- og Spánarferðum sínum þau árin sem íslenska krónan pakkaði erlendum myntum saman hér á svokölluðum góðæristíma.

Eina ástæða þess að Boston er nú fyrir valinu er einfaldlega sú að það er eina borgin sem flogið er til í beinu flugi héðan þar sem verðlag er enn bærilegt þrátt fyrir fall krónunnar. Skandinavía öll er fokdýr þessa dagana og London sömuleiðis og þá er fokið í flest skjól fyrir ferðaglaða Frónbúa sem ekki nenna að standa í tengiflugi með tilheyrandi bið og leiðindum.

En að það séu fregnir að 1,5 prósent þjóðarinnar eyði peningum í verslunum Boston fyrir jólin er fráleitt. Miðað við fákeppnisaðstæður í verslun á Íslandi er fréttin í raun sú hversu fáir eru að versla í Boston þessi jólin. Kannski hefur það með verðlag á ferðum þangað nú þegar Icelandair situr eitt um hituna.