Tíðindi

Táslur á strönd heilla langflesta

  08/12/2011No Comments

Strandferðalög eru áberandi vinsælustu ferðalög hins almenna borgara hvar sem er í heiminum og langt á undan annars konar ferðum.

Nei! Þetta þarf ekkert að ræða frekar. Bara drífa sig

Kemur þetta skýrt fram í viðamikilli könnun ferðaleitarvélarisans Expedia um ferðavenjur fólks víðs vegar í heiminum en könnunin náði til fólks í öllum heimsálfum ef frá er talið Suðurskautið.

Ein spurninganna í könnuninni var hvert fólk færi ef það gæti aðeins farið einu sinni á ári í ferðalag. Að meðaltali kusu 38 prósent allra að við þær kringumstæður væri strandferðalag efst á óskalistanum. Nítján prósent kysu helst rómantískt ferðalag, þrettán prósent færu í borgarferð og ellefu prósent í einhvers konar ævintýraferð.

Kemur spánskt fyrir sjónir að það eru ekki íbúar á norðlægum slóðum sem setja strandferðalög oftast í efsta sætið heldur eru Brasilíu- og Argentínumenn hrifnastir af dúlleríi á sandströndum. Þá eru það Indverjar og Norðmenn sem taka rómantíkina föstum tökum og færu hiklaust slíka ferð umfram aðrar.

Ekki var litla Ísland með í könnun Expedia en öllu minni vefkönnun Fararheill fyrr á árinu leiddi í ljós að 60 prósent kjósa strandferðalög umfram aðrar ferðir árlega.