Einvalalið úr viðskiptaheimum í stjórn, forstjórinn eins þaulkunnugur rekstrinum og framast er unnt, nýjar sparneytnar rellur að leysa gamlar reykspúandi vélar af hólmi, rekstur helsta samkeppnisaðilans hangir á bláþræði og „sérfræðingar” telja gengi bréfa félagsins vanmetið um helming. Samt tekst Icelandair ekki að kveikja neista hjá fjárfestum!!!

Hlutabréfaverð Icelandair nánast botnfrosið þrátt fyrir ýmsar aðgerðir til að bæta reksturinn.
Dálítið makalaust ekki satt. Stærsta flugfélag landsins með rassinn kjaftfullan af seðlum sem safna bara ryki nær ekki að trekkja fjárfesta til að kaupa bréf flugfélagsins. Við hér auðvitað að tala um hið aldna Icelandair sem er líklega eina flugfélag heims sem rekið hefur verið með bullandi tapi á mesta uppgangstíma í ferðaþjónustu í landinu fyrr og sennilega síðar líka.
Skoðum töflu dagsins:

Við lok dags í dag kostaði eitt stykki bréf í Icelandair 8,7 krónur. Það er þokkalega á pari við hlutabréfagengi flugfélagsins síðla árs 2012 eða ÁÐUR en algjör megasprenging varð í komu erlendra ferðamanna til landsins.
Hæst reis gengi bréfa flugfélagsins í 38,9 krónur síðla árs 2016 en hefur síðan fallið hraðar en lungu í stórreykingarmanni. Hlutabréf Icelandair eru nú tæplega 80 prósent minna virði en á toppnum þá. Hvað veldur því að hjörtu fjárfesta, þrátt fyrir miklar breytingar í yfirstjórn, töluverðar aðhaldsaðgerðir síðustu misserin og vera mögulega að ná aftur mikilli einokunarstöðu á flugi til og frá landinu, virðast á engan hátt slá hraðar gagnvart bréfum Icelandair?
Víst er nýi stjórinn ekki traustvekjandi og kannski er forstjóri Toyota ekki heppilegasti aðilinn sem stjórnarformaður en miðað við aðgerðir flugfélagsins síðustu vikur og mánuði og feitan seðil í hús þegar hótelkeðja flugfélagsins verður seld, virðist enginn fjárfestir að missa sig í hamingjugreddu.
Getur verið að fjárfestar sjái fyrir sér að ferðamannagóðærið hérlendis sé endanlega fyrir bí? Eða að fjárfestar sjái fyrir sér að Icelandair geti ekki keppt við erlend flugfélög þegar og ef Wow Air fellur í gleymskunnar dá?
Við hér vitum ekki svarið en undarlegt má vera að þokkalega rekið flugfélag með djúpar hirslur af seðlum á kantinum sem sér mögulega fram á að ná aftur einokunarstöðu á íslenskum flugmarkaði skuli ekki ná að kveikja í fjárfestum.
Forvitnilegir tímar í hönd…







