Þá er hún hafin árleg haustútsala lággjaldaflugfélagsins easyJet. Þeir fljúga sem kunnugt er frá klakanum og til og er eitt af fáum lággjaldaflugfélögum sem bjóða þér að bóka flug áfram gegnum Bretland vandræðalaust.

Góður afsláttur ofan á almennt lág fargjöld er eitthvað sem við ættum að skoða nánar. Skjáskot

Sjálfsögð þjónusta hjá hefðbundnum flugfélögum að bóka fólk alla leið til Tyrklands þó stoppað sé í Munchen. Ekki svo mikið hjá þessum ódýru. Þar verður yfirleitt að bóka hvern legg fyrir sig.

Þó ekki hjá easyJet sem merkir að haustútsalan gæti vel komið þér til framandi staðar á tiltölulega sársaukalausan og ódýran máta. Hafa skal hugfast að lægstu fargjöld easyJet gilda eingöngu ef tveir eða fleiri bóka saman. Einstaklingur getur vissulega orðið sér úti um ódýr flug en greiðir alltaf meira en ef fleiri bóka í einu.

Sjálfsagt að kíkja. Kannski leynist eitthvað súperverð til Tírana, Sikileyjar eða Sagres…