Einhver þarna úti að borga 79.900 krónur á mann fyrir flug fram og aftur til Prag í Tékklandi í lok mánaðarins? Líklega fáir nema Sjólaskipafjölskyldan sem líklega hefur svindlað tugmilljörðum undan skatti um áratugaskeið.

Það var engu að síður uppsett verð á flugi fram og aftur með Heimsferðum til Prag á nokkrum dagsetningum í lok september lengi vel. Eingöngu flugið út og heim aftur kostaði upphaflega 79.900 krónur á kjaft eins og sjá má hér til hliðar.

Nú skyndilega hefur sú ferðin lækkað um HELMING eða niður í 39.950 krónur per haus. Rándýr helgartúrinn til höfuðborgar Tékklands allt í einu kominn á þokkalega eðlilegt verð sem Jón og Gunna ráða hugsanlega við fyrir stuttan túr til Evrópu.

Helmings afsláttur alltaf plús og ekki nóg með það heldur hefur ferðaskrifstofan framlengt tilboð sitt fram á sunnudaginn kemur en það átti upphaflega aðeins að gilda í einn dag. Svo er líka plús fyrir Heimsferðir að henda dóti á afsláttarkjör með meiri fyrirvara en sólarhring eða svo sem hefur verið raunin um ár og raðir.

Það breytir ekki því að heimta 80 þúsund kall fyrir flug fram og aftur til Prag er græðgi út í eitt.