Sólin hnígur til viðar á farsæla Fróni þetta haustið og öll viljum við framlengingu á geislum hennar eftir fantagott sumar á suðvesturhorni landsins. Þá óvitlaust að smella sér yfir á vef Wizz Air sem þennan daginn býður 20% aukaafslátt á öllum haustfargjöldum.

Góð og lág fargjöld Wizz Air nú á góðum aukaafslætti.
Þó hið ungverska Wizz Air bjóði almennt afar lág fargjöld hingað og þangað og þar á meðan frá Íslandinu góða þá virðist sem bókanir í haust séu ekki alveg nógu margar.
Við hér, sem meðlimir í „eðalklúbbi” Wizz Air, fengum skeyti á mánudaginn var þess efnis að allir meðlimir nytu 20% afsláttar ofan á hefðbundin lág fargjöld á öllum flugleiðum í allt haust. Það varð þó að bóka fyrir miðnætti á mánudaginn var.
Við urðum því pínu hissa að vitna að þetta sama tilboð er enn í boði og nú fyrir alla sem álpast inn á vef flugfélagsins. Enginn akkur í eðalklúbbnum miðað við þetta en ágætt tækifæri til að lengja í sól og sælu í Evrópu fram á haust fyrir minni pening en ella.







