Allnokkrar rannsóknir sýna fram á að velflestir flugfarþegar eru reiðubúnir að greiða aðeins extra fyrir góða þjónustu. En yfirmenn margra flugfélaga láta allt slíkt sem vind um eyru þjóta.

Emirates er ekki eitt þeirra flugfélaga sem eru að henda afþreyingarkerfi fyrir róða en mörg önnur eru á þeirri leið. Mynd Emirates

Velflest bandarísk flugfélög og stöku alþjóðleg líka ætla á næstu misserum að losa sig alfarið við afþreyingarkerfi um borð í vélum sínum. Þú veist, litlu skjáina í sætisbökunum sem stytta okkur stundir á flugi með kvikmyndum, tónlist og leikjum í úrvali. Þú setur á þig heyrnartól og geim on vandræðalaust.

Þetta er stínker léleg þróun að okkar mati. Hugmyndin er að farþegar geti sjálfir tekið með sér afþreyingu í farsímum eða snjalltækjum og notið netsambands um borð og þannig fengið sömu þjónustuna.

En það er ekki alveg svo einfalt.

Í fyrsta lagi er netsamband víða í háloftunum vægast sagt lélegt enn þann dag í dag og aðgangur kostar oft hönd og fót. Í öðru lagi eru ekki allir í flugi með súpersíma, fartölvu eða iPad í fórum sínum. Í þriðja lagi bjóða ekki öll flugfélög upp á rafmagn fyrir snjalltæki í hverju sæti. Í fjórða lagi taka þau tæki pláss á matarbakkanum sem merkir að þú þarft að leggja þau frá þér meðan þú færð þér kaffi og kleinu á leiðinni. Í fimmta lagi eru ekki allir sem notfæra sér eigin tæki til brúks með heyrnartól. Nálægir unnendur kammertónlistar gætu því þurft að hlusta á Dr.Dre og 50 Cent klukkustundum saman án þess að geta sagt heibabbílúlla.

Fyrir flugfélögin er plúsinn sá að afþreyingartækin eru þung. Með því að henda þeim fyrir róða og bjóða einungis ælupoka og öryggisspjald í sætisbakinu spara þau sér dágóðan pening. En þá kemur á móti að flugfélög heimsins eru búin að henda fyrir róða mörgu því sem gerði flugferðir ljúfar og skemmtilegar hér áður fyrr. Og með tilliti til að flugferðir fara nú í taugarnar á mörgum þeim sem þykir vænt um plánetuna þá hefur flugiðnaðurinn engin efni á því að skera sæmilega þjónustu niður í hreinan skít og kanil.