Þ rjár vikur þangað til fyrsta flug hins nýja lággjaldaflugfélags Play fer í loftið ef áætlanir standast og margir geta ekki beðið enda samkeppni til og frá landinu af skornari skammti en heilasellur í Sigmundi Davíð.

Sætisbil hjá Play er á pari við það sem minnst gerist í heiminum.

Engin ósköp hafa frést af væntanlegri þjónustu um borð, fjölda sæta í rellunum eða hvort flugfélagið ætlar að bjóða upp á mismunandi farrými. Fararheill hefur þó fengið staðfest að almennt sætisbil, það er bilið milli höfuðpúða á langflestum sætisröðum verður 71 sentimetri. Stöku undantekningar á þessu eins og við neyðarútganga en 71 sentimetri raunin svona heilt yfir.

Vitum ekki hvort fólk gerir sér grein fyrir því en 71. sentimetra sætisbil er á pari við það allra versta í flugheimum á heimsvísu. Meira að segja hið hræðilega flugfélag Ryanair býður lágmark upp á 76 sentimetra sætisbil eins og reyndar Wow Air gerði líka. Ef við kíkjum svo á hefðbundið sætisbil á almenningsfarrými hjá eldri flugfélögunum er munurinn töluverður. Hjá Icelandair er sætisbilið aldrei minna en 81 sentimetri.

Ók, en hvað þýðir þetta á mannamáli?

Tökum Fréttablaðið sem margir fá frítt inn um lúguna. Sá snepill er 40 sentimetrar á hæð og sú lengd dekkar næstum lengd sætisins sjálfs. Sem merkir að raunverulegt fótapláss hjá Play er innan við 30 sentimetrar. Sirka á pari við skjáinn á lítilli fartölvu. Sem aftur þýðir að ef þú ert stór um þig eða yfir 1,85 á hæðina gæti flug í normal-sæti hjá Play farið heldur illa með þig.

Sjálfsagt að hafa þetta hugfast áður en þú bókar. Því þó það sé príma að komast hingað og þangað á góðu verði er lágt verð minna spennandi ef þú ert í alvarlegu krumpi hægri vinstri á leiðinni.