
Forstjóri Icelandair. Sitthvað skringilegt við bréf í flugfélaginu. Mynd Icelandair
Eftirspurn eftir flugi til og frá landinu mun meiri en forráðamenn Icelandair gerðu ráð fyrir strax í maímánuði og fram eftir sumri, fraktflutningar framar vonum og það vantar gott fólk í störf hjá flugfélaginu Icelandair í þúsundatali. Svo auðvitað ókeypis túristaeldgos í bæjarstæðinu sem er líklega komið til að vera um ár og aldir.
Ljúfar fréttir fyrir hlutabréfaeigendur, ljúfar fréttir fyrir íslenskt hagkerfi og allt fólkið sem kemst nú aftur í skemmtileg störf.
Svo hvað er vandamálið?
Jú, það er þetta:

skjáskot Nasdaq
Hlutabréf í Icelandair hafa nánast bara farið niður á við á sama tíma og allar þessar jákvæðu fréttir detta í hús. Bréfin fallið um tæp 11% á síðustu tveimur vikum sem er oggupons ógnvænlegt þegar hvert bréf rétt slefar yfir eina krónu að virði.
Vita fjárfestar eitthvað sem við hinir fáráðlingarnir vita ekki? Eru þetta hugsanleg áhrif Play eða eitthvað allt annað?
Stórt spurt. Fararheill reyndi að ná tali af Völvu Vikunnar vegna málsins án árangurs en ólíklegt er að fjárfestar viti nokkuð í sinn haus frekar en við hin. Töluvert lengra en tvær vikur eru síðan Play tilkynnti sín plön og ekkert á að koma forráðamönnum Icelandair á óvart þar. Svarið er því „eitthvað annað.”
Hvað í ósköpunum gæti það verið?
Okurverðlagning á einföldustu flugleiðum? Gamlar, reykspúandi rellur? Of hörð samkeppni? Léleg stjórn eða stjórnun? Vextir á lánum?
Við hér engu nær. Normið er að virði bréfa fyrirtækja HÆKKAR þegar allt gengur í hag en því er ekki að heilsa nú. Sem veit ekki á gott ef einn góðan veðurdag slæmar fréttir af Icelandair fara að berast…







