Það verður að taka hattinn ofan fyrir bæjarstjórn Poznan í Póllandi. Þeir sitja ekki með hendur í skauti þegar kreppa ríður húsum.
Þvert á móti brjóta þeir ákveðið blað í sögu ferðamennsku og helgina 13. og 14. júní 2010 ætla flest hótel, gistihús, söfn, veitingahús og barir í borginni að lækka verð sín um helming. Leikur enginn vafi á þar með heilla þeir helling af fólki sem ekki er með fullar hendur fjár.
Fararheill.is veit ekki til þess að heil borg hafi áður gripið til slíkra ráðstafana en hún er vissulega til eftirbreytni því það er almenn vitneskja að ferðamenn skilja mun meira eftir sig en aðeins á gististöðum og veitingahúsum.
Gruni einhvern að Poznan sé með þessu að reyna að komast á ferðamannakortið er það rangt. Poznan er ýkja merkileg borg og er ein sú vinsælasta í Póllandi meðal ferðafólks.
Eins og meðfylgjandi mynd ber með sér er fullt tilefni til að heimsækja borgina til þess eins og skoða arkitektúrinn en borgin er einnig þekkt sem ráðstefnu- og sýningarborg og nú síðast í desember var haldin þar Loftslagsráðstefna Sameinuðu þjóðanna.
Allt sem þú vildir vita um Poznan en þorðir ekki að spyrja hér.








