Hmmm. Sami einstaklingur og gengisfelldi virði eins stærsta fyrirtækis landsins um 63 prósent á mesta annatíma í íslenskri ferðaþjónustu frá aldaöðli fær kósí djobb sem stjórnarformaður Íslandsstofu???

Lækkaði virði Icelandair um tugmilljarða króna áður en hann lét tilleiðast að taka pokann. Príma mál að greiða manninum milljónir króna hjá Íslandsstofu fyrir vikið… Skjáskot RÚV
Höfum lesið einar átta tilkynningar um brotthvarf Jóns Ásbergssonar sem stjórnarformanns Íslandsstofu þennan daginn. Ekki einn fjölmiðill setti spurningarmerki við að þybbinn fyrrum forstjóri risafyrirtækis sem kostað hefur lífeyrissjóði landsins tugmilljarða króna skyldi fá það djobbið.
Var starfið auglýst? Var hæfasti umsækjandi ráðinn?
Neibbs. Svo virðist sem Guðlaugur Þór, utanríkisráðherra, hafi bara sett óhæfan vin sinn, Björgólf Jóhannsson, þráðbeint í djobbið og það nokkrum dögum eftir að Björgólfur hætti sem forstjóri Icelandair með það fyrirtæki á bjargbrún.
Hvað gerir herra Jóhannsson hæfan til að þiggja milljónir króna sem stjórnarformaður Íslandsstofu? Þetta er jú einstaklingur sem gerði A) lítið úr heilum hópi fólks. Þið vitið: mí-mí hópnum. B) Þetta einstaklingur sem vildi að þjóðin seldi frá sér allt sem gefur ríkinu tekjur en héldi öllu hinu sem kosta peninga. C) Maður sem fór langleiðina með að setja Icelandair á hausinn á sama tíma og gósentíð hefur verið í ferðabransanum.
Ef þú rokkar ekki í þínum bransa þegar allt er í húrrandi sveiflu þá ertu ekki ýkja merkilegur stjóri. Punktur og basta.
Út með manninn frá Íslandsstofu. Hann þegar kostað landsmenn tugmilljarða króna. Hvers vegna gefa honum meira?







