Forstjórinn með tæpar þrjár milljónir í mánaðarlaun, stjórnarformaðurinn með fimm millur á ári fyrir tíu 20 mínútna langa fundi og nokkrar millur á mánuði í ofanálag sem forstjóri Símans. En að starfsfólkið á gólfinu fái mannsæmandi laun er af og frá.

Allar þessar rándýru stofnanir til að fjölga ferðamönnum til landsins og svo skýtur Ísavía þeim öllum ref fyrir rass sísons. Skjáskot
Slíkur viðbjóður er mjög líklega ástæða þess að annar hver maður sem starfar á Keflavíkurflugvelli talar ekki staf í íslensku og þjónusta á flugvellinum fær ekki nema þrjár stjörnur af tíu mögulegum samkvæmt neytendavefnum Skytrax.
Það líka mjög líklega ástæða þess að fjórum mánuðum eftir að tiltekið flugfélag fór á hausinn telur Ísavía samt þörf á því að tilkynna „farþegum” að flugi viðkomandi flugfélags þennan daginn hefði verið „aflýst.”
Þetta má glögglega sjá á meðfylgjandi skjáskoti hér til hliðar. Það tekið seinnipartinn þann 12. júní 2019 eða rúmlega fjórum mánuðum eftir að viðkomandi flugfélag fór á hausinn og hætti starfsemi.
Jamm, þú last þetta rétt. Sérfræðingar ríkisfyrirtækisins Ísavía vara við seinkunum hjá flugfélaginu Germania en það flugfélag hefur ekki verið starfandi síðan 5. febrúar.
Gaman að þessu. Um að gera að greiða alls ónothæfum skítaplebbum tugmilljónir króna úr almenningssjóðum fyrir upplýsingar sem hafa verið súrar um fjögurra mánaða skeið. Á sama tíma skerða ellilífeyri, öryrkjabætur, lækka framlög til Landsspítalans og háskólanna og auðvitað greiða Ásmundi Friðrikssyni fimm milljónir króna í aksturspeninga og Lilju Rafney þrjár milljónir króna í flugpeninga.
Alveg eðlilegt þjóðfélag…







