Hmmm. Sérfræðingar Samgöngustofu kannski ívið minni „sérfræðingar” en við héldum og treystum.

Tólf ára börn við neyðarútganga hjá Icelandair. Er það svo eðlilegt?

Okkur vitandi hefur enginn hjá Samgöngustofu, sem sér um allt eftirlit með innlendum flugfélögum, gert athugasemdir við eftirfarandi:

Sæti við neyðarútgang
Farþegi sem situr í sæti við neyðarútgang þarf að hafa náð 12 ára aldri, hafa líkamlega og andlega burði til að aðstoða ef upp koma neyðaraðstæður og geta lesið og skilið munnleg fyrirmæli sem gefin eru á ensku og íslensku.

Þetta allar kröfurnar sem Icelandair gerir til þeirra sem sitja við neyðarútganga í rellum flugfélagsins. Þurfa að vera tólf ára og geta aðstoðað hina 200 farþegana ef illa fer!!!

Einmitt það!

Það má vera makalaust „fullorðinn og þroskaður” einstaklingur sem hefur enn ekki náð fermingaraldri en á samt að sjá um að koma öllum um borð í farþegavél frá borði í grænum hvelli ef eitthvað alvarlegt bjátar á.

Töluvert meiri líkur á að krakkinn atarna missi sig í hryllingi og jafnvel blokkeri aðra farþega frá því að komast frá borði á neyðarstundu. Eða hvaða tólf ára einstaklingur ræður við að opna neyðarútgang og koma skipulagi á 200 tryllta einstaklinga sem vilja komast út eigi síðar en í gær?

Kannski ágætt að forstjóri Samgöngustofu síðustu árin þarf að taka pokann sinn. Því þetta er ekki til eftirbreytni..