Svo gæti farið að vinsælar strendur í Egyptalandi verði fyrr en síðar gerðar alfarið halal. Halal er samheiti yfir allt það sem múslimum er leyfilegt að gera samkvæmt Kóraninum.

Einhverjir kynnu að skella upp úr við að vitna konu í alklæðnaði busla í sjónum en það er álitið halal í löndum múslima. Mynd Charles Roffey
Hafa ýmsir haft af því áhyggjur með auknum völdum Múslímska bræðrafélagsins í Egyptalandi muni þrengja mjög að ferðamannastöðum þar í landi enda er lagt blátt bann við það í samfélagi múslima að kvenfólk spóki sig um án alklæðnaðar svo dæmi sé tekið. Sömuleiðis er áfengisneysla bönnuð þó víðs vegar í löndum Mið-Austurlanda fari heimamenn fram hjá þeim lögum með ýmsum leiðum.
Halal ferðamennska er þegar til staðar í Tyrklandi, Malasíu og Indónesíu og kannski einhverjir Íslendingar orðið þess varir í bænum Alanya í Tyrklandi þar sem ein helsta ströndin og veitingastaðir við þá strönd eru eingöngu fyrir konur.
Greina fjölmiðlar í Egyptalandi að slíkir halal staðir séu til skoðunar hjá yfirvöldum. Þannig verði ákveðin vinsæl strandsvæði tilgreint halal eða ekki.
Hvort slíkt kemur til með að snerta hinu geysivinsælu staði Hurghada eða Sharm-el-Sheik á eftir að koma í ljós en líkurnar taldar minni en meiri. Gjaldeyristekjur Egyptalands koma að stórum hluta frá vestrænum ferðamönnum og efnahagur landsins er ekki það góður að nýir stjórnendur hafi efni á að hrekja þá á braut eða takmarka aðgengi.






