Fleiri kjósa fremur að taka sér sumarfrí en vetrarfrí samkvæmt nýjustu könnun Fararheill en munurinn er þó merkilega lítill. 52 prósent taka sumrin framyfir meðan 38 prósent vildu heldur taka vetrarfrí.
Miðað við að í árþúsundir hafa Frónlendingar þurft að gera sér að góðu að taka sumarfrí hvort sem það þótti spennandi eður ei þá er lítill munurinn enn merkilegri. Og þegar horft er til þess að í nýlegri könnun Fararheill sögðu flestir að besti tíminn til ferðalaga væri á haustin segir þessi niðurstaða ýmislegt.
Vitaskuld eru fjölmargir yfirmenn íslenskra fyrirtækja sem leggja blessun sína yfir vetrarfrí starfsmanna en tilfinning ritstjórnar er að þeir eru mun færri en fleiri. Flestir líta það hornauga að veita vetrarleyfi í stað sumarleyfis enda bætast þá við nokkrir aukadagar samkvæmt allmörgum kjarasamningum.
Tíu prósent þátttakenda töldu það tóma tjöru að taka frí almennt. Samkvæmt margvíslegum könnunum sem Fararheill hefur fjallað um áður er það ávísun á verri heilsu og skemmra líf en ella.
Ritstjórn þakkar þeim er þátt tóku en 282 greiddu atkvæði að þessu sinni.







