Pistlar

Plús í kladda Wow Air

  31/07/2012No Comments

Ritstjórn Fararheill hefur um skeið forvitnast hjá ferðalöngum um reynslu þeirra af að fljúga með nýjasta flugfélagi Íslands; Wow Air og hvernig samanburðurinn er við hin eldri. Niðurstaðan er almennt góð og ber fólk þjónustu flugfélagsins góða söguna.

Þjónustu og viðmót hjá Wow Air fær toppeinkunn hjá minnst einum bloggara

Bloggari einn, Hilmar Jónsson, segir frá því á vef sínum að hjá Wow hafi þjónusta farið fram úr vonum þegar hann þurfti með litlum fyrirvara að breyta áætlun sinni.

Skrifar Hilmar:

Þjónusta, viðmót og lipurð WOW air er til fyrirmyndar.

Þurfti að breyta um hótel með dags fyrirvara og þrátt fyrir umstang  var málið leyst með elskulegheitum og án alls aukakostnaðar.

Er þetta hið besta mál og mega fleiri gera því skil á bloggmiðlum og annars staðar séu þeir ánægðir með þjónustu fyrirtækja eins og flugfélaga. Það gleymist nefninlega oft að það er æði margt jákvætt í gangi mjög víða.