Tíðindi

Hætta tímabundið flugi til New York

  19/11/2011desember 6th, 2014No Comments

Forsvarsmenn Iceland Express hafa ákveðið að hætta öllu flugi til og frá New York um tæplega þriggja mánaða skeið frá 9. janúar næstkomandi til 28. mars. Þann tíma mun Icelandair einoka allt flug frá Íslandi vestur um haf.

Kemur þetta í kjölfar ákvörðunar ferðasalans að leggja af allar aðrar ferðir til Bandaríkjanna en síðustu misserin hefur Iceland Express boðið upp á fjölda áfangastaða í Norður Ameríku. Nýr forstjóri ákvað að leggja af allar aðrar ferðir til vesturheims en New York fyrir skömmu en nú mun sú leið heldur ekki verða í boði fyrrnefndan tíma.

Mun Icelandair því njóta einokunaraðstöðu til Bandaríkjanna frá Íslandi um þriggja mánaða skeið eftir áramótin en ekki fæst séð á heimasíðu þeirra að verðlag á ferðum til New York eftir 9. janúar hækki umfram það sem nú er.

Í samtali við Viðskiptablaðið segir Heimir Már Pétursson, upplýsingafulltrúi Iceland Express, að þessi ákvörðun hafi verið tekin fyrir nokkru og allir sem áttu bókað eftir umræddan tíma hafi fengið skilaboð um niðurfellingu ferða.

Hann er hins vegar ekkert spurður út í hvers vegna ferðasalinn tekur þessa ákvörðun en New York hefur verið meðal vinsælli staða í leiðakerfi Iceland Express. Heldur liggur ekki fyrir fjöldi ferða eftir að áætlun hefst að nýju í lok mars.