Þeir eru fáir sem skilja upp né niður í mikilli markaðsherferð Keflavíkurflugvallar hérlendis þar sem aðalatriðið er að völlurinn var valinn sá besti af farþegum árið 2009. Hafa forsvarsmenn talið það svara kostnaði að gera og birta allnokkrar sjónvarpsauglýsingar þar sem þessu er haldið á lofti.
Sem kannski er gott og blessað nema ríkið á völlinn og peningarnir til þess arna koma úr vasa skattborgara. Þess utan keppir Keflavíkurflugvöllur ekki við neina aðra flugvelli svo vitað sé hér á landi.
Ritstjórn Fararheill.is hefur ýmislegt við þetta að athuga:
- Í fyrsta lagi er umrædd könnun Airports Council International byggð á spurningalista sem starfsmenn Keflavíkurflugvallar halda utan um. Fátt er því til fyrirstöðu að „lagfæra“ niðurstöðurnar þótt ACI geri „sérstakar“ rannsóknir á því að svo sé ekki raunin.
- Í öðru lagi kemst Keflavíkurflugvöllur hvergi á blað hjá öðrum samtökum sem dæma um ágæti flugvalla heimsins. Helstu verðlaunin í þessum bransa þykja vera hjá Skytraxx og World Travel Awards.
- Síðast en ekki síst er fátt sérstaklega gott við völllinn fyrir farþega.
- Gangar eru langir og þröngir og án rúllustiga. Er jafnan þröngt á þingi á háannatíma að sumarlagi.
- Veitingastaðirnir tveir á staðnum eru afar dýrir og úrval lítið.
- Verslanir á svæðinu eru oftar en ekki dýrari en í hefðbundnum verslunum.
- Sæti og bekkir eru óþægileg ef löng bið er fyrir höndum. Ekki í boði að leggjast á bekkina.
- Biðraðir eru venja en ekki undantekning ef fá á endurgreiddan virðisaukaskattinn
- Aðstaða fyrir reykingafólk er jafnan viðbjóðsleg auk þess að vera í raun úti.
- Engin samkeppni í farþegaflutningum til og frá vellinum. Aðeins Flugrútan eða leigubílar í boði.
- Fyrir kemur reglulega að vélar fara ekki upp að flugstöðinni þó rampar séu auðir og veður dapurt.
Ritstjórn Fararheill.is hefur farið víða og þekkir flugvelli marga mætavel. Keflavíkurflugvöllur er langt í frá sá daprasti en hann er líka töluvert frá því að vera sá besti.
[polldaddy poll=3865325]






