Mikið er gert úr kæru flugfélagsins Wow Air á hendur Iceland Express í fjölmiðlum í dag og ekki síður gerði Iceland Express mikið úr því að þar færu forsvarsmenn Wow Air með tóma steypu. Málið allt er þó eingöngu fárviðri í viskístaupi.
Ritstjórn Fararheill þykir miður að flugfélögin tvö eyði mínútu af orku og tíma í að berjast hvort við annað í stað þess að reyna að finna enn fleiri leiðir til að bæta þjónustu og auka úrval ferða. En það kemur ekkert á óvart.
Fram hefur komið í fjölmiðlum, bæði hér á Fararheill og annars staðar, að forsvarsmenn Iceland Express sögðust óhræddir við samkeppnina þegar tilkynnt var um stofnun Wow Air. Sömuleiðis hafa bæði stjórnarformaður og forstjóri Wow Air sagt opinberlega að Wow Air hafi ekki verið stofnað til höfuðs Iceland Express. Pláss sé fyrir bæði flugfélög.
Sé það sannleikanum samkvæmt hvers vegna er Iceland Express þá með mannskap að telja inn í vélar Wow Air í Keflavík? Og hvers vegna eru Wow menn að argast yfir því ef þeir líta ekki á Iceland Express sem samkeppnisaðila?
Auðvitað er samkeppni milli þessara flugfélaga og einfeldningsháttur að telja að slíkt yrði ekki raunin. Sem er bara frábært mál. Frábært fyrir neytendur í landinu og meira að segja frábært fyrir flugfélögin sjálf. Hvorugt geta raunverulega keppt við risann Icelandair og mikið óskaplega hlýtur að vera meira gaman í vinnunni þegar bullandi samkeppni ríkir daginn inn og út.
En auðvitað eru bæði flugfélög á nálum. Ljóst er orðið að forráðamenn Wow hafa ofmetið verulega markaðinn og farið af stað með of miklu kappi en lítilli forsjá. Þarf enga aðila að telja inn í vélar þeirra til að finna út að Wow Air hefur þegar dregið verulega úr flugframboði sínu og samt er félagið aðeins rétt rúmlega mánaðar gamalt í loftinu. Þeir hafa sameinað allnokkrar flugleiðir sínar og fækkað fyrirhuguðum ferðum töluvert.
Að sama skapi er Pálmi Haraldsson enn aðaleigendi Iceland Express og enginn nema hann sjálfur veit hversu mikla fjármuni hann hefur milli handanna. Flugfélagið hefur aldeilis tekið til í sínum ranni og sennilega má þakka það að mörgu leyti tilkomu nýrra samkeppnisaðila. En Iceland Express hefur eytt gríðarlegum fjárhæðum í auglýsingar og ímyndarherferðir til að fá fólk til að gleyma hörmungum fyrri ára þegar vélar voru gamlar og þreyttar og hending að farþegar kæmust á leiðarenda á réttum tíma.
Upp úr stendur að þó félögin tvö bjóði of keimlíka áfangastaði eru engu að síður fleiri möguleikar í boði til og frá landinu fyrir Jón og Gunnu í Breiðholtinu og á Vopnafirði. Vélar Iceland Express eru nýrri og fallegri en í vélum Wow Air fær fólk meira sætapláss fyrir sama eða svipað verð.
Að mati ritstjórnar Fararheill er engum greiði gerður með eilífum skotum og skætingum. Engum verður heldur greiði gerður ef annaðhvort þessara flugfélaga heldur ekki út samkeppnina. Hana þurfum við sannarlega eftir áratuga einokun á flugi til og frá landinu.
Hallelujah!







