Þú getur tekið ár í að þræða vef Icelandair eftir hagstæðu verði á flugi eða notað Google Flights og brúkað fimm sekúndur.

Þú og betri helmingurinn spennt fyrir helgarferð til Amsterdam, Madríd, Varsjár, New York eða Edinborgar á næstunni. Samkeppni er til allra ofangreindra staða og því getur tekið feitan tíma að finna út hver er að bjóða bestu/lægstu fargjöldin á þeim tíma sem þú vilt fara. En þegar neyðin er stærst er Google næst 🙂

Það er næstum kjánalegasti hlutur í heimi fyrir meðaltekjufólk að gera ekki verðsamanburð á flugi og ferðum nú þegar loks örlar á samkeppni í bæði flugi og ferðum til og frá landinu. Ólíkt banka- og tryggingageiranum eru raunverulega erlend flugfélög að fljúga í stríðum straumum til og frá landinu og þau koma alfarið í veg fyrir okurtilburði íslenskra flugfélaga Skúla Mogensen og Björgólfs Jóhannssonar.

En sem fyrr er Njörður með galla á gjöf sinni.

Sá er að það er tímafrekur andskoti að gera verðsamanburð. Ekki síst ef fólk er ekki fullnuma á tölvum og neti og það eru sannarlega ekki allir. Jafnvel þó fólk kunni fótum forráð á netinu getur það tekið heilu og hálfu kvöldstundirnar. Wow Air Skúla Mogensen stendur sig allvel. Þar hægt á tiltölulega fljótlegan hátt að finna lægstu fargjöld marga mánuði fram í tímann. Icelandair hins vegar í fornöld með bókunarvél sína og þar þurfa áhugasamir að fletta vefsíðum til enda veraldar til að finna hagstæðustu fargjöldin langt fram í tímann. Fyrir utan það vesen eru ekki allir með á hreinu hvaða flugfélög eru að bjóða flug á tiltekna staði frá Keflavík. Um 30 flugfélög fljúga reglulega til og frá Keflavík en hvert nákvæmlega þau fljúga og hvort það hentar þér og þínum þarf að ganga úr skugga um með tímafrekri vefleit.

Eða hvað? Er til einfaldari leit að hagstæðasta verði á flugi frá Keflavík og út í heim en að þræða í þaula vefi allra flugfélaganna?

Google Flights sýnir þér á augabragði hvaða dag í maí eða júní, eða aðra mánuði fram í tímann, er ódýrast að fljúga til Madríd á Spáni frá Keflavík. Eða allra annarra staða á jarðarkringlunni. Skjáskot

Jú, til þess eru að minnsta kosti tvær leiðir. Annars vegar að notfæra sér sérstaka flugleitarvefi á borð við Skyscanner eða Dohop sem leita uppi flug frá einum stað til annars og birta í röð á þeim dagsetningum sem óskað er eftir. Flestir slíkir vefir standa sig ágætlega enda væru þeir ekkert í bisness lengi ef þeir væru ekki sannarlega að finna það sem leitendur leita eftir.

Það er þó einn galli við flugleitarvélarnar og hann sá að mörg flugfélög banna þeim aðgöngu. Flugfélögin vilja gjarnan fá bisness beint og milliliðalaust svo ekki þurfi að greiða milliliðum aukagjald ofan á allt annað.

Það aftur merkir að Dohop eða Momondo eða Skyscanner finna vissulega flott fargjöld milli staða en ekki endilega lægstu fargjöld eða bestu fargjöld. Þessu til sönnunar er óhætt að skoða flug til Madríd á Spáni með Dohop. Fullt af fínu stöffi en Dohop finnur aðeins fargjöld EINS AF ÞREMUR flugfélögum sem bjóða beint flug milli Keflavíkur og Madríd næsta sumarið. Þangað fljúga Icelandair, Norwegian og Iberia Express en aðeins Norwegian leyfir flugleitarvefum að bjóða vörur sínar. Hvorki Icelandair né Iberia Express finnast gegnum Dohop.

Víkur þá sögu að seinni leiðinni að finna flug á sem bestu eða lægstu verði. Það er í boði vefrisans Google og kallast Google Flights.

Leitaðu að Google Flights á vefnum, stimplaðu inn brottfarar- og áfangastað plús dagsetningar og Google birti á augabragði lægsta verð á flugi hvert sem er í heiminum.

Hvers vegna er Google Flights skárri kostur en sérstakar flugleitarvélar? Ástæðan sáraeinföld. Google sér allt og veit allt og þarf ekkert að biðja Icelandair eða önnur flugfélag sem á annað borð eru á netinu, um leyfi til að birta hitt verð og þetta verð á flugi.

Google Flights er með öðrum orðum að spara þér sporin svo um munar og um leið mögulega spara þér fjármuni. Alls óvitlaust, ef þú ert að þvælast á eigin vegum út í heim 🙂

Hey! Vorum við búin að segja þér að gistibókunarvefur okkar er FIMMFALDUR heimsmeistari samkvæmt World Travel Awards? Þau verðlaun fær enginn sem ekki býður mest og best 🙂