Bullandi sala hjá ferðaskrifstofunum. En að ráða fólk sem komið er til vits og borga því sómasamlega virðist fjarlægt takmark. Allaveganna hjá Heimsferðum Andra Más Ingólfssonar.

Aldiana Alcaidesa hótelið er fínt til brúks. Það er hins vegar ekki að finna á Costa del Sol.

Aldiana Alcaidesa hótelið er fínt til brúks. Það er hins vegar ekki að finna á Costa del Sol.

Fararheill rakst á skondna ferðaauglýsingu Heimsferða fyrir skömmu. Þar verið að auglýsa golfferðir til Spánar og annaðhvort er ferðaskrifstofan að blekkja mann og annan eða að starfsfólk Heimsferða er ekki komið til vits. Nema hvorugtveggja sé.

Skoðum auglýsinguna:

Hotel Aldiana Alcaidesa **** m/allt innifalið
Alcaidesa Links golfvöllurinn er ein af golfperlunum á Costa del Sol. Völlurinn var hannaður af Peter Ellis árið 1992 og hefur fengið margar viðurkenningar sem einn af bestu links-völlum á meginlandi Evrópu. Völlurinn liggur að hluta til meðfram 2 km langri Miðjarðarhafsströndinni með stórkostlegu útsýni yfir hafið og Gíbraltarklettinn.
Alcaidesa Heathland golfvöllurinn er meira hæðóttur innanlandsvöllur með breiðum brautum, vötnum og einstöku landslagi. Margir telja að hann sé síst síðri en links-völlurinn.

Hér er nóg af blah-blah um ekki neitt en eitt stingur þó illa í augu vitiborins fólks. Aldiana Alcaidesa er alls ekki á Costa del Sol!

Það er nú eiginlega lágmarkskrafa af hálfu lesenda að þeir sem bulla á samfélagsmiðlum ferðaskrifstofanna hafi hlutina rétta. Costa del Sol heitir strandlengjan frá Torremolinos til austurs gróflega til borgarinnar Estepona til vesturs í Andalúsíu á Spáni. Aldiana Alcaidesa er hins vegar að finna við bæinn La Alcaidesa sem aftur finnst í Cadiz-héraði.

Spurning hvort hægt sé að treysta ferðaskrifstofu sem veit ekki hvar Costa del Sol er að finna. En kemur svo sem ekki á óvart. Andri Már ekki þekktur fyrir að greiða sérstaklega há laun. Maður fær það sem maður gefur og viðskiptavinurinn fær bull upplýsingar í staðinn.