Enn versnar í því fyrir þá farþega lággjaldaflugfélagsins Wow Air sem sannarlega vilja nýta sér allra lægstu fargjöld. Þeir geta ekki lengur tekið með sér handfarangur.

Jólaandinn svífur sannarlega yfir vötnum hjá Wow Air. Ekki!
Skúli Mogensen fer mikinn hjá elítunni íslensku. Markaðsmaður ársins, vefur fögrum stúlkunum um fingur sér og kemst í öll bestu partíin án þess að blikka auga. Flottur gaur ekki satt? Næstum á pari við Jón Ásgeir Jóhannesson og Pálma Haraldsson árið 2007.
Wow Air auglýsir víða og það statt og stöðugt og alltaf einhverjar dásemdir eins og lág fargjöld til Ísrael eða lág fargjöld til einhvers krummaskuðs vestanhafs (Cleveland einhver..)
Flugfélagið auglýsir þó alls ekki þegar þjónusta er skert til mikilla muna heldur kýs fremur að viðskiptavinir lendi á vegg við innritun.
Ekki er langt síðan Mogensen hvatti alla farþega sína til að kaupa sér gotterí í flugstöðvum áður en lagt væri í hann með Wow Air (til að spara sjáðu til.) Fimm mínútum seinna var lagt blátt bann við að farþegar Wow Air gætu tekið svo við mikið sem eitt Ritz-kex með um borð og notið meðan á flugi stóð. Neibbs. Mogensen vill að lýðurinn kaupi fokdýran mat um borð í vélinni. Til dæmis kjúklingasamloku á 1150 krónur (tvær brauðsneiðar með 70 grömmum af kjúklingi og tíu grömmum af beikoni) eins og sjá má hér til hliðar. Það svona nokkuð á pari við kostnað við kjúklingasamloku hjá 10/11 sem er dýrasta búlla Íslands en Wow Air tekur græðgistitilinn þar sem engan þarf skatt eða toll að greiða af þeirra samloku. Wow Air því dýrari kostur en 10/11 hér á klakanum og hver verslar þar nema nauðugur til?

Farangur með lægstu fargjöldunum hjá Wow Air? Ekki lengur. Aðeins heimilt að taka með lítil veski um borð án þess að greiða aukalega. Skjáskot
Annað sem farið hefur framhjá öllum vegna þess að Skúli vill ekki að neinn viti af er sú staðreynd að það er ekki lengur mögulegt að hafa með handfarangur á ódýrasta farrými Wow Air. Eins og sést glögglega á skjáskotinu hér til hliðar er alls ENGINN handfarangur lengur innifalinn þegar ódýrasta fargjaldið er bókað. Sem var þó raunin lengi vel og það síðast tíu kíló, þar áður tólf kíló og þar áður var ekkert hámark á þyngd handfarangurs.
Milljarðamæringurinn Mogensen er því búinn að skera ódýrustu fargjöld sín vel inn í bein en við erum samt að borga sömu upphæðir fyrir herlegheitin.
Á sama tíma eru velflest önnur lággjaldaflugfélög á borð við easyJet og Norwegian enn að bjóða fólki að taka handfarangur með án aukagreiðslu. Eðlilega sökum þess að flest komumst við af án þess að draga með stórar ferðatöskur. En við þurfum öll smotterí með í allar ferðir og það kemst yfirleitt vel í handfarangur.
Hvað svo ef þú þarft að taka handfarangur með í flug með Wow Air. Þá eru tvær leiðir færar. Annars vegar að kaupa Wow Plus fargjald, sem eru yfirleitt helmingi dýrara en Wow Basic, ellegar kaupa Wow Basic og kaupa handfarangursheimild aukalega. Það kostar að lágmarki 3.999 hverja leið og getur kostað 6.999 ef þú þarf að borga á flugvellinum.
Smekklegt hjá Mogensen. Alltaf að græða.







