Hvernig er best að flækja hlutina ennþá meira en orðið er? Jú, bjóðum fólki upp á inngöngu í MyWow klúbbinn þar sem það fær allra lægstu og bestu fargjöld og hraðvirkara bókunarferli í þokkabót.

Enn eitt fargjaldið kynnt til sögunnar hjá Wow Air. Mynd Caribb

Fátt leiðinlegt við það að fá sjálfkrafa lægstu hugsanlegu fargjöld með Wow Air og ekki neikvætt heldur ef bókunarferlið gengur hraðar fyrir sig. Fínt að spara þetta fimm sekúndur aukalega því við lifum jú aðeins einu sinni og hver sekúnda telur.

MyWow heitir nýjasta útspil Skúla Mogensen hjá Wow Air. Innganga í þann mæta klúbb gerist sjálfkrafa ef Jón eða Gunna skrá sig í MyWow flug á vef flugfélagsins. Og við sem héldum að þrískipting fargjalda Wow Air hér fyrr á árinu ætti nú að duga. Neibb, nú er komið fjórða fargjaldið á einu og sama fluginu.

Ekkert MyWow fargjald í boði til Dublin í maí. Skjáskot

Eða hvað?

Í ljós kemur við rúnt á leitarvef Wow Air að það er mjög hippsumhapps hvort MyWow fargjöld séu í boði. Það finnst ekkert slíkt fargjald til Dublin í maí eins og sést hér til hliðar. Þar einungis þessu hefðbundnu fargjöld flugfélagsins.

Ekki svo að skilja að Wow Air sé að svindla per se. MyWow fargjöld finnast á tilteknum flugleiðum eins og sjá má í næsta skjáskoti hér til hliðar. En þar er gallinn sá að MyWow fargjöldin eru ekkert betri en þessi venjulegu. Til hvers að brydda upp á sér-fargjaldaklassa sem er nákvæmlega eins og annar fargjaldaklassi er líklega einhver snilldartaktík hjá markaðsfræðingum Wow Air en fyrir okkur hér þá er þetta lítið að virka.

Til að allrar sanngirni sé gætt þá höfum við rekist á MyWow fargjöld sem eru raunverulega lægri en þetta hefðbundna sem flugfélagið býður fólki. En ólíkt því sem Wow Air vill vera láta gilda þau fargjöld aðeins um flug til örfárra áfangastaða þegar gefið er í skyn að MyWow dekki flug í allar áttir.

Aðalspurningin er þó hvers vegna í heitasta helvíti er verið að bæta fargjaldaflokk við allt sem fyrir er. Eru MyWow áskrifendur að láta af hendi meiri upplýsingar en almennir flugfarþegar Wow Air? Upplýsingar sem Wow Air getur nýtt sér eða selt áfram til þriðja aðila? Eða hvað græðir flugfélagið á þessum nýja möguleika? Það er ekkert ókeypis í þessu lífi og sérstaklega ekki hjá flugfélagi vellauðugs manns.

Verst þó að samkvæmt smáa letrinu á vef Wow Air er „Wow Basic“ ódýrasti flugmöguleikinn hjá Wow Air. Það er þá tóm lygi ef allt í einu MyWow býður „besta verðið“ og um leið brot á neytendalögum. Þar er bannað að segja eitt og meina annað 😉