Skömmu eftir að við bentum á að ekkert benti til að flugfélagið Wow Air ætlaði sér að hefja aftur flug til Miami á Flórída eins og talað var um á sínum tíma, auglýsir flugfélagið þess í stað nýjan áfangastað í því sólríka fylki: Orlandó.

Loks samkeppni til eins vinsælasta vetraráfangastaðar Íslendinga vestanhafs. Skjáskot

Óvenju gott múv hjá herra Mogensen og hans fólki og fyrir því minnst tvær ástæður. Annars vegar að hér er Wow Air aldrei þessu vant að hugsa um Íslendinga við val á flugleiðum. Þó vissulega flækist með stöku Bandaríkjamenn þessa leiðina þá er yfirgnæfandi meirihluti þeirra sem fljúga á milli Íslendingar sem þrá sól og sælu meðan myrkur og kuldi kæfa allt heima á klakanum.

Víst má gera að því skóna að einn og einn Evrópubúi hafi hug að skottast til Flórída yfir vetrartímann líka en úrval beinna ferða frá álfunni slíkt að ólíklegt er að fólk sem þráir sól á kropp geri lykkju á leið sína til að stoppa á Íslandi.

Hins vegar príma mál sökum þess að hér fær Icelandair fyrsta sinni samkeppni til þessa vinsæla áfangastaðar þar sem, eftir því sem við komumst næst, allt upp í þúsund Íslendingar eiga eignir sem þeir nýta einu sinni eða oftar á ári. Hér því eftir nokkru að slægjast því enginn á eignir á Flórída nema eiga gilda sjóði í bönkum og það fólk setur ekkert fyrir sig að punga út fyrir tösku, betri sæti eða annað það sem Wow Air selur nú aukalega dýrum dómum.

Við skoðun á bókunarvef Wow Air má sannarlega finna þau 19.900 króna fargjöld sem flugfélagið auglýsir nú sem sitt lægsta verð. Sem endranær gleymist ávallt að tiltaka bókunargjald þannig að í raun er lægsta verð aðra leiðina út 20.998 krónur. Lægstu fargjöld ekki í boði á allra vinsælustu dagsetningum eins og fyrir jól eða áramót en það kannski eðlilegt.

Það sem er hins vegar óeðlilegt er að hér, sem oftar, er miklu dýrara að komast heim aftur frá Orlandó. Þeir er jú ekki mökkur af fólki sem þvælist bara aðra leiðina til Flórída. Allra ódýrasta fargjald heim aftur kostar 24.900 krónur.

Ekki nóg með það. Það er orðinn verulegur verðmunur á flugi til og frá á lægsta verði með ekkert innifalið og verðinu ef fólk langar að grípa með sér tösku. Eins og sést glögglega á meðfylgjandi skjáskotum.

Allra lægsta fargjald Wow Air ef farangur er meðferðis er því tæplega 66 þúsund krónur á mann. Til samanburðar eru lægstu fargjöld Icelandair sömu leiðina með tösku meðferðis 68 þúsund krónur rúmar.

Það er skammarlega lítill verðmunur. Ekki síst þegar tekið er tillit til að flugið er langt og í vélum Icelandair er bæði afþreyingarkerfi og netsamband og sætabil meira. Hjá Wow Air verður fólk heilt yfir að horfa í gaupnir meðan á sextán klukkustunda fluginu stendur fram og aftur.

Það getur varla kallast alvarleg samkeppni eða hvað. Svona svipað og að Krónan er alltaf einni krónu dýrari en Bónus 🙁