Jamaíka er lítil og fjöllótt eyja sem þýðir að pláss fyrir golfvelli er takmarkað mjög. Þó hafa lúxushótelin á eynni flest komið sér upp völlum og það mjög góðum en þeir eru nokkuð dýrir og í sumum tilfellum þarf að gista á viðkomandi stað til að fá leyfi til að spila. Á öðrum greiða hótelgestir mun lægra verð en aðrir. Þá skal og hafa í huga að óheimilt er að spila án kylfubera og stundum án golfbíls. Greiða þarf aukalega fyrir það.
Að þessu sögðu er einn stór kostur við golf hér að einmitt sökum þess að landið er eyja er hér oftar en ekki örlítill ferskur blástur frá hafinu sem þýðir að þótt hitastigið sé oft morð fyrir fólk af Fróni er mögulegt að spila hér átján holur án þess að þurfa reglulega aðstoð sjúkraliðs.
Fjöldi valla: 12
Meðalverð: 12 – 22 þúsund krónur hringurinn.
- Caymanas Golf
- Cinnamon Hill
- Constant Spring
- Half Moon
- ManchesterClub
- Negril Hills
- Sandals Golf
- Superclubs Golf Club
- Superclubs Ironshore
- Tryall Club
- White Witch Golf






