Áhugafólk um ferðalög þekkir sennilega flest Heita pott flugfélagsins Iceland Express en þangað fara gjarnan þau flugsæti á tilboðsverði sem ekki seljast þegar skammt er í brottför. Eru þau eðli málsins samkvæmt jafnan keypt upp á skömmum tíma enda töluverður sparnaður því samfara.
Nú, sautjánda október, horfir svo við að í pottinum eru allmargar ferðir, einar fjórtán talsins, sem er verulega umfram hefðbundið framboð í pottinum. Annað sem athygli vekur er að margar ferðanna eru ekki á næsta leyti heldur í nóvember og jafnvel tvær þeirra í desember næstkomandi.
Heiti potturinn hér.






