Engin er borg með borgum nema þar sé að finna golfvelli nú til dags og þennan sannleika tóku stjórnvöld í Dúbai alvarlega fyrir rúmum tíu árum eða svo. Var gerð metnaðarfull áætlun um uppbyggingu golfvalla í þessu landi þar sem vatn er mjög af skornum skammt og á örskömmum tíma voru byggðir einir sjö golfvellir í landinu. Velflestir eru í eða við Dúbaiborg sjálfa.

Þessir vellir eru hundrað prósent fyrsta flokks enda umsýsla ekki í höndum fimm til tíu einstaklinga heldur starfa hartnær hundrað manns við umhirðu flottustu vallanna.

Á sumum er hægt að spila golf allan sólarhringinn enda upplýstir. Alls staðar eru golfreglur hafðar í heiðri og réttur klæðnaður nauðsynlegur. Einnig skulu allir sýna sönnun um forgjöf sína og meðlimskap í klúbbi.

Heildarfjöldi valla: 7

Meðalvallargjald: Frá 16 til 28 þúsund krónum hringurinn.