Þýska flugfélagið Germania sem hefur um hríð boðið upp á billega flugtúra til Friedrichshafen og Bremen ætlar að bæta um betur á næsta ári. Þá bætast Nurnberg og Dresden við leiðakerfið frá Keflavík.

Fleiri áhugaverðir staðir í boði með Germania á næsta ári

Fleiri áhugaverðir staðir í boði með Germania á næsta ári

Aldeilis fínar fréttir fyrir ferðaþyrsta. Ekki aðeins sökum tveggja nýrra mjög spennandi áfangastaða heldur og vegna þess að verðlagning Germania er á pari við lággjaldaflugfélög en þeir þýsku leyfa samt farþegum að drösla með sér farangri án aukakostnaðar.

Til marks um þetta sýnir stikkprufa Fararheill að komist er til Nurnberg og heim aftur í júlí á næsta ári með tösku með Germania niður í 22 þúsund krónur samtals á mann lægst þegar þetta er skrifað. Þeir sem fljúga hins vegar með Icelandair í þeim mánuði til nágrannaborgarinnar Munchen greiða að lágmarki rúmar 40 þúsund krónur fyrir flugið út og heim aftur.

Helmings munur er töluverð upphæð fyrir svipaða vöru…