Gestir Flug- og geimvísindasafns Smithsonian í Washingtonborg í Bandaríkjunum munu innan tíðar gefast kostur á að berja augum elstu og eina merkilegustu geimferju heims en þangað hefur nú geimferjan Discovery verið flutt en henni var lagt endanlega í byrjun árs 2012.

Loftferðasafni Smithsonian bætist góður gripur í formi geimferjunnar Discovery

Loftferðasafni Smithsonian bætist góður gripur í formi geimferjunnar Discovery

Er það prýðileg viðbót við frábært flugsögusafn Smithsonian sem Fararheill fjallar meðal annars um í vegvísi sínum um Washington sem er tær snilld að heimsækja þó ekki sé nema reka inn nefið á eitthvert af frábærum söfnum borgarinnar.

Var Discovery flogið með tilþrifamiklum hætti á baki Boeing júmbóþotu frá Kennedy höfða á Flórída til Dulles flugvallar í Washingtonfylki og vakti flugið mikla athygli. Ráð er fyrir gert að geimferjan verði komin á dvalarstað sinn í Smithsonian safninu við hlið véla á borð við Concorde og fyrstu flugvélanna vestanhafs innan tíðar.

Heimasíða safnsins hér.