Einhver hefur líklega misst starfið hjá bandaríska flugfélaginu United eftir að opinbert varð að flugfélagið hafði týnt tíu ára stúlku sem flugfélagið lofaði að fylgjast með og koma örugglega á áfangastað en gerði ekki.

Enginn starfsmaður United flugfélagsins átti eina mínútu til að hjálpa tíu ára stúlku á O´Hare flugvelli í Chicago. Stúlkan týndist í kjölfarið
Sömuleiðis fór fyrir lítið milljarða dollara króna ímyndarherferð flugfélagsins í tengslum við Ólympíuleikanna í London sem talin var hafa tekist framúrskarandi vel þangað til það fregnaðist daginn eftir að leikunum lauk að flugfélagið hafði týnt barni.
Bloggaði prófessor við Stanford háskóla um atvikið sem kunningjahjón hans lentu í með dóttur sína. Sendu þau stúlkuna eina með United í sumarbúðir annars staðar í landinu og voru fullvissuð um að starfsmenn myndu ábyrgjast stúlkuna alla leiðina.
Nema hvað stúlkan missir af tengiflugi sínu í Chicago og fékk enga hjálp sökum þess hve starfsfólk United átti annríkt. Of annríkt til að hjálpa lítilli hjálparlausri stúlku. Sem hvarf í kjölfarið og enginn vissi neitt fyrir en foreldrarnir fengu símtal frá sumarbúðunum þess efnis að stúlkan hefði ekki skilað sér á tíma.
Í ljós kom að sá starfsmaður flugfélagsins sem sjá átti um að fylgja stúlkunni hafði ekki mætt og því fór sem fór. Fannst hún ekki aftur fyrr en sjónvarpsstöð í Chicago fjallaði um málið eftir ósk um hjálp frá foreldrunum.
Til að bæta gráu ofan á svart lét markaðsdeild United sem þetta væri ósköp lítið mál þegar fjölmiðlar fóru að grafast fyrir sem eru byrjendamistök í bransanum. Í kjölfarið blogguðu þúsundir um málið og það á fésbókarsíðu flugfélagsins.
Afsökunarbeiðni kom ekki fyrr en sólarhring eftir að málið komst í hámæli en þá var skaðinn skeður. Hætt er við að sá ávinningur sem flugfélagið fékk með að tengjast, fyrir milljónir dollara, Ólympíuleikunum og íþróttamönnum sem þar kepptu hafi farið fyrir lítið.
En þetta segir fólki kannski líka að það fylgir því ákveðin hætta að treysta fyrirtækjum fyrir börnum sínum. Setja verður stórt spurningarmerki við foreldra sem senda ungt barn í langt ferðalag með tengiflugi og erfiðleikum.






