Ekki mörgum íslenskum flug- eða ferðaþjónustufyrirtækjum dytti í hug að bjóða sérstök fyrirjólatilboð sem giltu strax eftir stresspökkuð jól- og áramót. En það gerir norska lággjaldaflugfélagið Norwegian.
Þannig kemst fólk nú með því flugfélagi, frá Osló, til Faró í Portúgal fyrir litlar 8.800 krónur miðað við miðgengi krónu gagnvart þeirri norsku þegar þetta er skrifað. Og enginn þarf að flýta sér mikið eða sitja límd við tölvuna á ákveðnum tíma til að missa ekki af neinu því fyrirjólatilboðin eru í boði til 3. desember.
En það er skítkalt í Faró í Portúgal og Íslendingurinn vill komast í yl og kósíheit. Norwegian er líka með ráð við því. Til dæmis flug til Dúbai í Sameinuðu arabísku furstadæmunum aðra leiðina fyrir tæpar 28 þúsund krónur. Það er kannski of langt að fara og þá er óvitlaust að fljúga bara til Fuertaventura aðra leið fyrir tæpar sextán þúsund krónur.
Verð norska flugfélagsins miðast reyndar við töskulaust fólk en jafnvel þó greiða þurfi seðil fyrir farangur er verð á ferðum þeirra langtum betri en nokkuð sem héðan býðst. Eins og alltaf.
Þar að auki gilda tilboðin aðeins um ferðir í janúarmánuði og er ritstjórn sennilega ekki ein um að telja þeim mánuði ofaukið í dagatalinu hér á Fróni.
Heimasíða Norwegian hér.






