Pistlar

Merkileg þessi verðbólga

  22/11/2012No Comments

Ritstjórn Fararheill hefur lengi verið þeirrar skoðunar að helsta ástæða þess að almenningur í landinu er yfirleitt alltaf tekinn í skraufþurrt af innlendum fyrirtækjum sé ekki sú að við séum svona vitlaus.

Sex ár síðan tilboðsfargjöld Iceland Express voru kringum átta þúsund krónur. Tilboðsfargjöld í dag eru nær því að vera 20 þúsund. Eðlilegt?

Við höfum flest bara of mikið að sýsla dags daglega til að geta fylgst með öllu því sem máli skiptir. Fjölmiðlarnir í landinu, sem eiga að halda okkur upplýstum, eru sjálfhverfir og í litlu sambandi við fólkið. Hvað annars útskýrir það að neytendamál hafa aldrei nokkurn tíma þótt merkilegar af blaðamönnum landsins. Hvers vegna kostar svo mikið að borða og af hverju er alltaf þúsund prósenta verðamunur á vörum hérlendis og erlendis þykir ómerkilegt efni.

Hins vegar er forsíðufregn að Hollywood leikarar hjóli um götur hérlendis eða að Íslendingur í Danmörku sé tekin með fíkniefni eða „fréttir“ þess efnis að ekki megi fara gegnum græna hliðið í Leifsstöð með vörur yfir 36 þúsund krónur að verðmæti. Fjölmiðlarnir virðast halda að við séum upp til hópa öll gegnheilir fávitar.

En það erum við ekki. En við þurfum upplýsingar og það réttar til að geta tekið skynsamlegar ákvarðanir eða hafa skoðun á hlutunum sem ekki er byggð á sandi. Þegar við fáum þær ekki er auðvelt fyrir óprúttna kaupmenn landsins að hafa okkur að fíflum.

Ritstjórn hefur orð á þessu nú vegna þess að í samkomu nýlega kom til tals hvað fólki þætti vera góð tilboð á flugi erlendis. Meirihluti var á þeirri skoðun að 15 til 20 þúsund krónur fyrir flug aðra leið til Evrópu væri sérdeilis gott tilboð.

En er það svo?

Bestu tilboð flugfélaga og ferðaskrifstofa hérlendis þessa síðustu og verstu eru vart undir 20 þúsund krónum þegar allt er til talið. Wow Air býður jú flug alveg niður í þrettán til fjórtán þúsund krónur en þá eru eftir nokkur atriði eins og bókunargjald og farangursgjald. Lægsta raunverð á flugi á tilboði þessi dægrin er um 20 þúsund krónur til eða frá.

Förum sex ár aftur í tímann eitt augnablik og kíkjum á eitt af mörgum tilboðum Iceland Express frá þeim tíma (sjá mynd). Tilboð þess tíma voru meira en helmingi ódýrari en þau eru í dag.

Þetta kallar ritstjórn feita verðbólgu því ekki kemur til mála að laun og eldsneytiskostnaður hafi hækkað um rúman helming frá árinu 2006. Eða hvað?

Sammála þessu mati eða ósammála?

[polldaddy poll=6712114]