Oftar en ekki þurfa ferðamenn að punga drjúgt fyrir hvers kyns gistingu í Alpafjöllum enda úrval takmarkað og ásókn mikil. Það á þó ekki við um einn kósí fjallakofa á Foronon Buinz fjalli Ítalíumegin. Þar má gista frítt.
Hér hangir þó aðeins á spýtu því kofinn atarna stendur efst á umræddum toppi í 2532 metra hæð eða fjögur hundruð metrum rúmum hærra en toppur Hvannadalshnjúks. Það þó ekki það versta heldur sú staðreynd að kofinn stendur aðeins einum metra frá þverhnípi svo ekki er víst að nokkur vilji eða geti hvílt lúin bein hér næturstund. Fyrir utan að á toppinn er alls ekkert komist án þess að leggja sig í líma og hættu líka.
Kofinn er einmitt reistur til að minnast manns sem hér féll fyrir nokkrum árum en þekktur ítalskur arkitekt vildi minnast félaga síns með þessum hætti. Kofinn bæði sérhannaður og sérsmíðaður til að standast veður og vinda en þarna blæs duglega á veturna.
Fyrir hina sem ekki nenna á klífa fjöll og firnindi með til að halla frítt höfði geta skoðað aðra möguleika á bókunarvél Fararheill hér að neðan 🙂








