Ég er ekki á leiðinni neitt en breytist það þá mun ég frekar fara með tvíbytnu eða loftbelg á milli landa en Iceland Express.
Svo mörg eru þau orð Jennýar Önnu Baldursdóttur, ofurbloggara með meiru, í nýrri færslu á bloggi sínu en Jenný er ein þeirra sem tjáð hafa sig um þjónustu flugfélagsins Iceland Express sem hefur verið mjög milli tanna á fólki að undanförnu.
Svona lággjaldaflugfélög eru ágætt þegar þau fúnkera jafnvel þó þurrar samlokur á uppsprengdu verði geri ekki mikið fyrir ferðagleðina en það má þola það ef komast má skammlaust á milli A og B.
Reyndar skil ég ekki hvernig stendur á því að fólk er að skipta við þessa háloftasjoppu sem ekkert er stólandi á.
Styrkja Pálma í Fons og eyðileggja ferðalagið er beisíklí það sem kemur út úr dæminu.
Enívei…
Ég er ekki á leiðinni neitt en breytist það þá mun ég frekar fara með tvíbytnu eða loftbelg á milli landa en Iceland Express.
Það er bara þannig.






